Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 10

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 10
GARÐAR SIGURGEIRSSON, bæjarstjóri, Garðabæ: GARÐABÆR - NÝR KAUPSTAÐUR Garðahreppur, nú Garðabær, bættist í tölu kaupstaða frá ársbyrjun 1976 með 1. nr. 83/ 1975. I allmörg ár hafði Garðahreppur verið fjölmennasti hreppur landsins, en sveitarfélagið er nú áttundi fjölmennasti kaupstaður landsins með 4200 íbúa. Garðahreppur varð til árið 1878, þegar Álfta- neshreppi hinum forna var skipt í tvennt, Garðahrepp og Bessastaðahrepp. Til þess tíma náði Álftaneshreppur yfir það svæði, sem nú er Hafnarfjörður, Garðabær og Bessastaðahreppur. Ibúar Garðahrepps voru þá innan við 800. Árið 1908 varð Hafnarfjörður sjálfstætt sveitarfélag og hvarf úr Garðahreppi. Eftir þá breytingu urðu íbúar Garðahrepps talsvert innan við 300. Árið 1950 voru íbúarnir rúmlega 500, en upp úr því fór byggð í Garðahreppi mjög vaxandi, og fjölg- ar íbúum stöðugt. Byggð hefur verið í sveitarfélaginu allt frá landnámstíð. Landnáma getur þar tveggja land- námsjarða, Vífilsstaða, þar sem Vífill, leysingi Ingólfs Arnarsonar bjó, og Skúlastaða, þar sem Fyrsta bæjarstjórn Garðakaupstaðar ásamt bæjarstjóra. Talið trá vlnstrl: Guðmundur Einarsson, verkfr., Guðrún Erlends- dóttlr, lögfr., Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, Ágúst Þorsteinsson, öryggisfulltrúi og Hilmar Ingólfsson, kennari. Lengst til hægri Garðar Sigurgeirsson, bæjarstjóri, greinarhöfundur. sveitarstjórnarmAl

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.