Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Qupperneq 61
Unnlð að spjaldskrárgerð. Marga
stundlna hafa bókaverðlr setlð vlð
skráningu og flokkun, enda
spjaldskrárkassarnir orðnlr marglr. Á
myndinni eru talið frá vinstri: Þóra
Hólm, nemi í bókasafnsfræði, Else
Mia Einarsdóttlr,
bókasafnsfræðingur, Kristín H.
Pétursdóttir, bókavörður á
Borgarspítalanum, sitjandi fremst;
Sigrún Klara Hannesdóttir, lektor og
Erla Kristín Jónasdóttlr,
bókasafnsfræðingur.
kaupa hráefni í spjöldin og hefja fjölritun á stensl-
unum, svo að spjöldin verði tilbúin þegar pant-
anirnar fara að berast.
Til þess að verk þetta dragist nú ekki úr hömlu,
verða opinberir aðilar, sveitarstjórnir og ríkið, að
hjálpa til og fleyta þessu máli yfir erfiðasta hjallann.
Og í þeim tilgangi var boðað til ofannefnds fundar.
Allir hljóta að vera sammála um gildi þessa verks
fyrir söfnin, því að mjög víða á landinu eru nú að rísa
skólabókasöfn og almenningssöfnin eru að rísa úr
öskustónni. Fyrir öll þessi söfn er spjaldskrárdreif-
ing af þessu tagi mikil lyftistöng. Með því að bera
saman kostnaðinn við að frumskrá bókasafn annars
vegar og hins vegar að kaupa tilbúin spjöld, sést
greinilega, hvílíkur sparnaður er að því að kaupa
þessa þjónustu.
Hingað til hefur verkinu verið þokað áfram með
fyrirframgreiðslu nokkurra bókasafna, eins og áður
var getið, og hefur verið unnið jafnharðan fyrir
það fé, sem borizt hefur. Enn er því mikill fengur
fyrir okkur, ef einhver söfn eða skólar gætu greitt
fyrirfram fyrir sþjaldskrár sínar til þess að hægt væri
að hraða verkinu. Erum við alltaf til viðtals við alla
þá, sem vilja koma sér upp spjaldskrá yfir safnkost
sinn. Annað hvort má skrifa okkur línu í Pósthólf
1167 eða hringja í einhverja félaga í Félagi bóka-
safnsfræðinga. Við treystum enn sem fyrr á velvilja
bókasafnsfólks og vonum, að ráðamenn ljái málinu
lið.
Þó að þessu verkefni ljúki, er svo ennþá eftir að
ljúka vélritun og allri annarri vinnu á hinum 21.000
spjöldunum, til þess að Bókaskrá 1944—1973 sjái
dagsins ljós!
55
SVEITARSTJÓRNARMÁL