Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Qupperneq 17
Umsjón með þjónustu við aldraða í sveitum gæti
verið kjörið svið fyrir sýslunefndir, því ekki verður
séð, að sýslufélagið sem stjórnsýslueining verði
lagt niður. Því er ekki úr vegi að láta sýslu-
nefndir og sýslumenn kenna þeirrar félagslegu
ábyrgðar, sem þeim er ætlað að bera samkvæmt
lögum.
Af þekktum dæmum tel ég, að slík þjónusta geti
stuðlað að mun lengri dvöl aldraðra í heimasveit og
þar með minnkað þörfina fyrir dvalarheimili.
I dreifbýli er mönnum nokkur vandi á höndum,
þegar velja á stofnunum eins og dvalarheimili stað.
Að fenginni reynslu má telja fullvíst, að ekki sé ráð-
legt að velja þeim stað i fámenni, og má þar benda á
sem dæmi dvalarheimilið að Fellsenda í Dölum.
Rekstur heimila i sveitum er vandkvæðum bund-
inn, bæði vegna skorts á starfsfólki og þjónustu frá
heilsugæzlu.
Aldraðir á Vesturlandi
Til þess að skoða þjónustu við aldraða í dreifbýli
nánar hef ég valið þann kostinn að fjalla nokkuð um
Vesturland.
Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni bjuggu
14840 íbúar í Vesturlandskjördæmi hinn 1. desem-
ber 1980, þar af 1210 67 ára og eldri. Að framan
nefndi ég hátt hlutfall aldraðra í sveitahreppum, og
vil ég nú sýna dæmi um þetta í yfirliti um fjölda
aldraðra eftir hreppum á Vesturlandi.
Eins og fyrr sagði, eru nú um 8.65% íbúa í landinu
67 ára og eldri. Af yfirlitinu hér að neðan má sjá, að
á Vesturlandi er fjöldi 67 ára og eldri 8.15%, sem er
undir landsmeðaltali og bendir til þess, að þjón-
ustuþörf aldraðra sé hlutfallslega minni að umfangi
en víða annars staðar á landinu.
YFIRLIT UM FJÖLDA ALDRAÐRA Á VESTURLANDI EFTIR
SVEITARFÉLÖGUM OG SÝSLUM FRÁ 1. DES. 1980
Sveitarfélag
Akranesbær
Borgarfjarðarsýsla
Strandarhreppur
Skilmannahreppur
Innri-Akraneshreppur
Leirár- og Melahr.
Andakílshreppur
Skorradalshreppur
Lundarreykjadalshr.
Reykholtsdalshreppur
Hálsahreppur
Mýrasýsla
Hvítársiðuhreppur
Þverárhlíðarhreppur
Norðurárdalshreppur
Stafholtstungnahr.
Borgarhreppur
Borgarneshreppur
Álftárhreppur
Hraunhreppur
Snæfellsnes- og
Hnappadalssýsla
Kolbeinsstaðahreppur
fbúafj. 67 ára og eldri %
5170 372 7,2
1451 129 8,9
164 20 12,2
131 9 6,9
117 12 10,3
157 10 6,4
274 13 4,7
67 9 13,4
120 17 14,2
315 32 10,6
106 7 7,7
2533 258 10,2
85 14 16,5
96 15 15,6
132 19 14,4
188 26 13,8
177 18 10,2
1615 129 8,0
124 22 17,7
116 15 12,9
4581 309 6,7
150 16 10,7
Sveitarfélag
Eyjahreppur
Miklaholtshreppur
Staðarsveit
Breiðuvikurhreppur
Neshr. utan Ennis
Ólafsvikurhreppur
Fróðárhreppur
Eyrarsveit
Helgafellssveit
Stykkishólmshreppur
Skógarstrandarhreppur
Dalasýsla
Hörðudalshreppur
Miðdalahreppur
Haukadalshreppur
Laxárdalshreppur
Hvammshreppur
Fellsstrandarhreppur
Klofningshreppur
Skarðshreppur
Saurbæjarhreppur
Vesturland alls:
lbúafj. 67 ára og eldri %
70 4 5,7
140 14 10,0
130 14 10,8
103 16 15,5
616 31 5,0
1180 54 4,6
26 0 0
794 34 4,3
87 14 16,1
1191 102 8,6
94 10 10,7
1105 132 11,9
55 10 18,2
154 21 13,6
69 7 10,1
415 31 7,5
110 15 13,6
75 13 17,3
30 14 46,7
52 7 13,5
145 14 9,7
14840 1210 8,15
SVEITARSTJÓRNARMÁL