Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 21
ÁSGEIR JÓHANNESSON, fyrrv. bæjarfulltrúi
og form. stjórnar Hjúkrunarheímilis
aldraðra í Kópavogi:
BYGGING
HJÚKRUNARHEIMILIS
ALDRAÐRA í KÓPAVOGI
Kópavogsbærerekki gamall kaupstaður. Hann er
25 ára árið 1980, og saga þéttbýlis í Kópavogi er
aðeins fáum árum eldri. Staðreynd er það eigi að
síður, að nú fjölgar ört öldruðu fólki í Kópavogi;
frumbýlingarnir gerast nú gamlir, og nú munu um
600 Kópavogsbúar vera 67 ára og eldri. Á undan-
förnum árum hafa ýmis félagasamtök, svo sem
Kvenfélag Kópavogs og fleiri slík, unnið mikilvæg
störf í þjónustu við aldraða. Velferðarnefnd aldraðra
á vegum bæjarfélagsins undir forustu sr. Gunnars
Árnasonar var hér starfandi lengi á 7. áratugnum, og
nú um sinn hefur bæjarfélagið sjálft haldið uppi
öflugri þjónustustarfsemi í þágu aldraðra. En á síð-
ustu árum hefuröllum, sem að þessum málum hafa
unnið hér, orðið ljóst, að nú væri mikilvægasta
verkefnið í þágu aldraðra að reisa hjúkrunarheimili
fyrir þá í Kópavogi.
Það gerðist í ársbyrjun 1978, að Soroptimista-
klúbbur Kópavogs boðaði nokkur félagasamtök með
bréfi til fundar, þar sem rædd skyldu úrræði í
þessum efnum.
I aprílmánuði 1978 komu svo fulltrúar frá 10
félögum í Kópavogi saman til þess að ræða, á hvern
hátt mætti hrinda af stað byggingu hjúkrunarheim-
ilis fyrir aldraða í Kópavogi. Um 30 aldraðir sjúkir
lágu þá á heimilum í Kópavogi og fengu hvergi
sjúkrahúsvist, og um 40 voru á stofnunum í Reykja-
\ ík. Aldraðir sjúkir á heimilum í Reykjavík, sem ekki
komust á sjúkrahús, skiptu hundruðum og því litlir
möguleikar fyrir Kópavogsbúa um úrlausn í þessum
efnum annars staðar. Auk þess kom fram, að
neyðarástand ríkti á sumum þessara heimila í
Kópavogi, þar sem þeir öldruðu dvöldust og erfitt
orðið að fá fólk til starfa við heimahjúkrun vegna
mjög erfiðrar starfsaðstöðu.
Tveir umræðufundir voru haldnir um málið í
aprílmánuði 1978, og voru deildar meiningar um
það, hvaða leið væri vænlegust til úrbóta. Vildu
sumir mynda þrýstihóp til þess að knýja á um
framkvæmdir hjá ríki og bæ með áskorunum og
fundahöldum, en aðrir töldu það ekki myndi bera
árangur í næstu framtíð, því skv. lögum bæri ríkinu
að greiða 85% byggingarkostnaðar af hjúkrunar-
heimilum, en sveitarfélögum 15%, og ríkið væri
meira og minna búið að ráðstafa sínu fé á næstu
árum til bygginga, sem þegar væru hafnar, og
Kópavogsbær myndi ekki hafa fjárhagslegt bol-
magn til að reisa slíka byggingu á næstu árum.
Stofnað til samtaka
Á síðari fundinum lögðu svo fulltrúar Rauða kross
deildar Kópavogs fram eftirfarandi tillögur, er
samþykktar voru einróma:
1. Þeir fulltrúar og félög, sem að fundi þessurn
standa, stofni samtök í þeim tilgangi að hrinda í
framkvæmd byggingu hjúkrunarheimilis fyrir
aldraða í Kópavogi.
SVEITARSTJORNARMAL