Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 22

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 22
2. Hver aðili tilnefni einn fulltrúa í samstarfsnefnd um málið, og skal samstarfsnefndin kjósa sér 3 manna framkvæmdastjórn. 3. Stefnt skal að því í upphafi, að hjúkrunar- heimilið verði sjálfseignarstofnun starfrækt í samvinnu við bæjar- og heilbrigðisyfirvöld. 4. Við skipulag og staðarval verði tekið tillit til þess, að síðar gæti risið dvalarheimili fyrir aldraða í nágrenni heimilisins. Stofnframlag kr. 1 milljón fylgdi tillögunum frá Rauða kross deildinni. Eftir samjjykkt ofangreindra tillagna voru mál öll könnuð nánar og samin stofnskrá fyrir hjúkrunar- heimilið, sem siðar var staðfest af dómsmálaráðu- neytinu og forseta Islands. Og þar sem ljóst var, að dómi stofnaðila, að í nánustu framtíð var hvorki bær né ríki eða þau sameiginlega í aðstöðu til að leysa þetta vandamál, ákváðu félögin að stofna formleg samtök um bygg- ingu hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi á grundvelli framlagðrar stofnskrár og var það gert 17. marz 1979. Aðildarfélögin eru þessi: Junior Chamber Kópa- vogur, Kirkjufélag Digranessóknar, Kiwanisklúbb- urinn Eldey, Lionsklúbbur Kópavogs, Lionsklúbb- urinn Muninn, Kvenfélag Kópavogs, Rotaryklúbb- ur Kópavogs, Soroptimistaklúbbur Kópavogs og Rauða kross deild Kópavogs. Samtökin eru í formi sjálfseignarstofnunar, og í stofnskrá segir meðal annars: 1. gr. ,, Tilgangur slofnunarinnar er og skal jafnan vera sá, að veila öldruðum og sjúkum hcimilisvist og aðhlynningu á hjúkrunarheimilinu og svo góða umönnun sem frekast er unnt. I þessu skyni veilir hún viðtöku gjöfum og hvers konar styrktarfé öldruðum og sjúkurn til aðhlynningar 3. gr. ,,Hver stofnenda kýs einn fulltrúa í fulltrúaráð stofn- unarinnar og einn til vara. Kosning fer fram á aðalfundi eða aukafundi, sem boðaður er með sama hœtti og aðal- fundur, enda þess getið i fundarboði, að kjósa eigi fulltrúa þessa. Kosning gildir í 8 ár, eða til þess tíma, að full- trúinn óskar að láta af störfum eða hœttir sannanlega að sinna þeim. Þó skal helmingur fulltrúa kosinn til 4 ára í fyrsta sinn samkvœmt hlutkesti. Þau félög, er ekki auglýsa fundi, kjósa fulltrúann á sama tíma og fastanefndir eru kosnar. Fulltrúaráðið skal kvatt saman minnst tvisvar á ári. Það kýs stjórn samkvæmt 4. gr., er tengiliður stjórnar og stofnenda og fær skýrslu um rekstur liðins árs. Fundi skal boða með ábyrgðarbréfi með einnar viku fyrirvara. Sérhver löglega boðaður fundur er lögrnætur“. 8. gr. „Konu að því, að fulltrúaráðið eða stjórnin, sbr. 9. grein, sjái sér ekki fœrt að reka hjúkrunarheimilið áfram, gefi hún bæjarstjórn Kóþavogs kost á því að taka að sér heimilið og allan rekstur þess ogyrði þá stofn að sjúkra- húsi í Kóþavogi, en hafni hún því boði, fellur hjúkrunar- heimilið með öllum eignum þess til Ríkissþítalanna i þágu þjónustu við aldraða og sjúka í Kóþavogi“. Framkvæmdir undirbúnar Eftir að stofnskráin hafði verið samþykkt af stjórnvöldum og stjórn kosin, var hafizt handa um undirbúning framkvæmda. Kynnti stjórnin sér fyrirkomulag þessara mála á höfuðborgarsvæðinu og víðar og naut ágætrar fyrirgreiðslu og hollra ráða Gísla Sigurbjörnssonar, forstjóra Grundar, en Gísli og kona hans Helga sýndu þá rausn að gefa lijúkr- unarheimilinu þá söfnunarbauka, sem nú mala gull fyrir byggingu hjúkrunarheimilisins á flestum heimilum í Kópavogi, auk þess sem Gísli færði kr. 5 millj. að gjöf frá Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, er fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu heimilisins. Eitt af fyrstu verkefnum var að finna góða lóð undir hjúkrunarheimilið. Voru víða kannaðir staðir, en samdóma álit stjórnarinnar var það, að hvergi væri betri staður í Kópavogi en á landi Ríkisspítal- anna við Kópavogsbraut. Var því leitað til stjórnar- nefndar Rikisspítalanna og heilbrigðisráðherra um lóð á þessum stað. Er skemmst frá því að segja, að þótt margar stofnanir hins opinbera séu frægar fyrir seinlæti í afgreiðslu mála, sem til þeirra berast, var því ekki til að dreifa í þessu tilfelli. Skömmu eftir að SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.