Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 24
Rúmar 38 vistmenn
Skagfirðingar í heimsókn til að skoða hjúkrunarheimilið í
smíðum. Á myndinni má sjá talið frá vinstri Friðrik Brekkan,
félagsmálastjóra á Sauðárkróki, Hörð Ingimarsson, bæjar-
fulltrúa þar, Ásgeir Jóhannesson, greinarhöfund, Friðrik J.
Friðriksson, héraðslækni og bæjarfulltrúa á Sauðárkróki og
lengst til hægri Sigurð Jónsson á Reynistað, hrepps-
nefndarmann í Staðarhreppi. Fleiri sendinefndir hafa komið
til að kynna sér byggingarmál hjúkrunarheimilisins í Kópa-
vogi. Ljósmyndina tók Ingimar Sigurðsson.
stofuna nokkur börn, sem frétt höfðu af málinu.
Komu þau færandi hendi með nokkur þúsund
krónur, sem þau höfðu safnað með hlutaveltu. Þetta
hefur endurtekið sig hjá fleiri börnum og skiptir nú
hundruðum þúsunda króna fjársöfnun barnanna til
þessa málefnis.
Hjúkrunarheimili aldraðra i Kópavogi verður um
1450 m- að stærð auk 750 m- í kjallara. í hjúkr-
unarheimilinu er rúm fyrir 38 vistmenn, sem skiptast
í 10 eins manns og 14 tveggja manna herbergi. Öll
herbergi hafa sér baðherbergi að undanteknum
þremur tveggja manna herbergjum, en þau eru ætl-
uð fyrir mjög þungt haldna sjúklinga. Húsinu er
skipt í tvær deildir. Annars vegar deild, þar sem gert
er ráð fyrir sjúklingum, sem þurfa á mikilli að-
hlynningu að halda, og hins vegar deild fyrir hressari
sjúklinga. I síðarnefndu deildinni er komið fyrir
ýmissi aðstöðu fyrir vistmenn, svo sem iðjuþjálfun,
sjúkrajjjálfun og bókageymslu. I báðum deildum eru
rúmgóðar setustofur, þar sem fjölþætt starfsemi
getur farið fram. Lögð er áherzla á, að sem flestir
vistmennvnjóti hins fagra útsýnis til suðurs og suð-
vesturs úr herbergjum sínum, en frá sameiginlegu
rými er útsýn til allra átta. Fyrirhugað er, að
byggður verði blómaskáli við húsið sunnanvert, þar
sem vistmenn geta átt ánægjulegar stundir meðal
blóma og vina. Stefnt er að [dví, að sjúklingar, sem
hljóta bata, hverfi aftur til heimila sinna eftir lengri
eða skemmri tíma. En sjúklingar, sem þurfa á aðgerð
að halda eða sérstakri rannsókn, leggist inn á önnur
sjúkrahús.
Hundrað millj. króna frá bæjarbúum
Staðan nú er sú, að félög, einstaklingar og heim-
ilin í Kópavogi hafa afhent eða tilkynnt um
framlög á jjeim 16 mánuðum, sem söfnunin hefur
staðið, sem nema um 100 milljónum króna.
Sú teikning af hjúkrunarheimilinu, sem nú hefur
verið sam|3ykkt, hefur verið unnin í samráði við hóp
hinna reyndustu hjúkrunarfræðinga, sem við höfum
á að skipa í þessum efnum hér á landi, og náið
samráð haft við Ingibjörgu Magnúsdóttur, deildar-
stjóra i heilbrigðisráðuneytinu. Hafa allir þessir
aðilar unnið að þessu máli endurgjaldslaust, af
áhuga brautryðjendanna, því þetta rnun verða
fyrsta sérhannaða hjúkrunarheimili fyrir aldraða,
18 sem byggt er hér á landi.
Kostar 550 milljónir
Hér á undan hefur verið stiklað á stóru varðandi
aðdraganda jaessa máls, og er nú komið að bygg-
ingarsögunni. Framkvæmdir hófust við grunngröft
26. janúar 1980, er elzti Kópavogsbúinn, Ragn-
hildur Guðbrandsdóttir, tók fyrstu skóflustunguna
101 árs að aldri, og fyrstu sökklar voru steyptir um
mánaðamótin apríl—mai. Grunngröftur og upp-
steypa hússins voru að mestu boðin út. í nóvem-
ber 1980 var lokið uppsteypu kjallara og allrar
grunnplötu og að mestu uppsteypu aðalhæðar.
Stefnt er að [dví að ljúka sem mestu af byggingar-
framkvæmdum á árinu 1981, því nú liggja um það
bil 50 aldraðir sjúkir í heimahúsum í Kópavogi við
ófullnægjandi aðhlynningu.
SVEITARSTJÓRNARMÁL