Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 43

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 43
vel Ijósmyndir af skemmdum bryggj- um, að þær skemmast ekki síður en skipin undan harðri viðkomu skip- anna, þegar engar þybbur eru á milli. Enda má sjá á nokkrum stöðum bryggjur, sem bókstaflega molna af þessum sökum. Sjá ljósmynd númer 1 á bls. 36. Það er því ekki síður til hagsbóta fyrir hafnarsjóði og til sparnaðar í viðhaldi bryggjanna, að gert sé átak í að verja bryggjurnar vel með þybb- um. Það er álit flestra þeirra, sem þessum málum eru kunnugir, að nauðsynlegt sé að hafa góðar varnir á hornum og köntum bryggjanna. Á nokkrum stöðum er reynt að verja bryggjuhornin með hjólbörðum. Nlikill þungi Sé á hinn bóginn farið að athuga þetta betur og leiða hugann að því, að t.d. 3000 tonna skip getur lagzt af öllum sínum þunga á einn hjólbarða á bryggjuhorni, er augljóst, að það er ekki mikil efnisþykkt gúmmís til að veita viðnám slíkum þunga. Það er ekki nema eðlilegt, að síða skipsins eða horn bryggjunnar láti undan við slíkar aðstæður, þegar skipið hefur lagt saman bíldekkið. Sérstaklega á þetta við, ef skipið nemur við mjög krappt horn bryggjunnar. (Sjá myndir númer 2 og 3). öðru máli gegnir, þegar skipið leggst með alla síðu sína að viðlegu- kanti bryggjunnar. Þá taka margir hjólbarðar við þunga skipsins og hann dreifist, þ.e.a.s. ef bryggjan er þá nógu vel varin með dekkjum. Það er því afar nauðsynlegt, að þeir, sem fara með viðhald og uppsetningu dekkjanna, geri sér vel ljóst, hvar þykkustu og beztu dekkin eiga að vera utan á bryggjunni. Ódýr lausn I þessu sambandi er nú verið að undirbúa tilraunir með bíldekk, fyllt með stönsuðum gúmmíhringjum úr bíldekkjum, sem sett verða inn í dekkið, en mynda hring inni í þvi, sem ætti að gefa margfalt meiri þenslukraft á móti þunga skipsins á viðkvæmustu stöðum bryggjunnar. Myndlr 2 og 3. Óvarið bryggjuhorn til vinstri svo oddhvasst, að það verkar sem dósahn ífur á skipshlið og getur því valdið miklu tjóni, ef skip kemur harkalega við það. Bryggjuhornið á myndinni til hægri hefur verið vel varið með dekkjum. Mynd 4. Þegar dekkin eru of hátt, fiskar skjólborðið undir þau og línuspil og gangsetjari bátsins liggur undir skemmdum, eins og vel sést á þessari mynd. Gangsetjarinn á þessu skipi hafði einmitt bognað nokkru áður við það, að bíl- dekk lenti á aðfallinu inn yfir lunninguna og olli talsverðu tjóni. Nauðsynlegt er því að ganga vel frá dekkjunum. 37 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.