Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 50

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 50
44 Á árinu 1971. Unnið við staurarekstur í viðlegubryggju í Bolungarvíkurhöfn á árinu 1971. Ljósmyndin er tekin 11. september það ár. Á árinu 1981. Ljósmyndin er tekin á sama stað og myndin hér að ofan. Myndina tók Bergsteinn Gizurarson, verkfr. í skoðunarferð um höfnina hinn 30. ágúst 1980, og sýnir hún bátaflota Bolvíkinga við bryggjuna, sem verið er að byggja, þegar Ijósmyndin að ofan var tekin. Thoroddsen, fengið samþykkta styrkbeiðni til við- gerðarinnar. Var svo tekið til við viðgerðina, og var hún framkvæmd á árunum 1916—1919. Fremsti hlutinn breikkaði nokkuð við endurbæturnar. Drymluhöfn Framhald þess ágreinings, sem upp kom og að framan greinir, varð það, að hugmyndin um Drymluhöfn fékk verulegan hljómgrunn. Það ýtti svo ntjög mikið undir þessa hugmynd, að enn urðu skemmdir á garðinum bæði árið 1922 og árið 1923. Voru nú teknar upp athuganir í þessu sambandi, könnuð var jarðvegsdýpt tjarnarinnar o. fl. Niður- staðan varð sú, að þessi inngrafna höfn gæti orðið 56 x 170 m stór með 2.5 m dýpi við lægstu fjöru. Aætlaði þáverandi vitamálastjóri, að sú höfn myndi kosta 352.000 krónur. Átti höfnin að geta rúmað um 40 vélbáta. Víða kemur þó fram, að nokkurrar van- trúar hafi ávallt gætt varðandi þessa inngröfnu höfn. Enda var áfram unnið við byggingu Brimbrjótsins. Drymluhöfnin var þó tekin upp á staðfestum skipulagsuppdrætti árið 1929, og það varekki fyrren árið 1943, að hugmyndin var formlega skrínlögð. Steinnökkvinn Nokkrar skemmdir urðu á Brimbrjótnum árin 1922 og 1923 og einnig árið 1925. Skemmdirnar 1922 voru þeirra mestar, og í sambandi við endur- bætur á þeim lengdist Brjóturinn nokkuð, eða um ca. 10 m. Mesta lenging Brjótsins í einum áfanga var gerð árið 1927, en þá var hann lengdur með steinnökkva, sem fylltur var með grjóti og sökkt við enda hans. Steinnökkvinn var 57 m langur og 9.5 m breiður. Næstu árin var síðan smám saman steypt ofan á nökkvann, og var það langt komið, þegar verulegar skemmdir urðu á mannvirkinu veturinn 1934—1935. Brotnuðu þá stór steypustykki og sópuðust inn fyrir garðinn ásamt grjótfyllingu úr nökkvanum. Þetta áfall var hið mesta, sem hent hafði til þessa, og kom enda á þeim tíma, sem þrengingar voru hér

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.