Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 59
FEGRUM BYGGÐ OG BÆ —
GLÖGGT ER GESTS AUGAÐ
Kjörorð Austfirðinga í ferðamálum á árinu 1981
Stjórn Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi hefur nýlega
fjallað á tveimur fundum um niður-
stöður ferðamálaráðstefnu Austur-
lands, sem haldin var á Hallormsstað
hinn 28. ágúst 1980. Hefur stjórnin
birt ályktanir ráðstefnunnar í frétta-
bréfi sínu og óskað þess, að málið
verði rætt í öllum sveitarstjórnum
fjórðungsins.
Meðal atriða, sem um var fjallað i
ályktuninni, var útgáfa ferðamanna-
bæklings um Austurland, átak í
ferðamálum á árinu 1981 undir kjör-
orðinu Fegrum byggd og bœ — glbggt er
gests augað, og fleiri aðgerðir til að
stuðla að eflingu ferðamála sem at-
vinnugreinar í fjórðungnum.
Ályktun ferðamálaráðstefnunnar
frá 28. ágúst 1980 var svofelld:
Ferðamálaráðstefna Austurlands
haldin á Hallormsstað 28. ágúst 1980
samþykkir:
1. að skora á Samband sveitarfé-
laga í Austurlandskjördæmi að hefja
nú þegar undirbúning að útgáfu
kynningarrits um Austurland. 1 þessu
riti verði í máli og myndum leiðbein-
andi upplýsingar um sem flest, er
máli skiptir fyrir ferðamenn.
2. að skora á Vegagerð ríkisins að
bæta leiðamerkingar um Austurland,
þannig að ferðamenn geti ratað.
3. að skora á yfirvöld að styðja þá
hugmynd, að Umferðarmiðstöð verði
reist á Egilsstöðum.
4. að hvetja bæjar- og sveitarfélög,
bændur og alla aðila á Austurlandi
að hafa kjörorð sitt á árinu 1981:
Fegrum byggð og bæ — glöggt er gests
augað.
5. að beina þeim tilmælum til
tollyfirvalda, að tollskoðun og toll-
eftirlit verði þannig framkvæmt, að
sem minnstri röskun valdi fyrir
ferðamenn. Er hér átt við þann langa
tíma, sem nú fer í tollskoðun m/s
Smyrils.
6. að beina þeim tilmælum til við-
komandi aðila:
a. að þjónusta við bifreiðaeigendur
verði aukin og reynt að skipu-
leggja helgarþjónustu á sem flest-
um ferðamannastöðum.
b. að samgöngur milli Egilsstaða-
flugvallar og Egilsstaðakauptúns
verði bættar. Reynt verði að bæta
þjónustu leigubifreiða í samvinnu
við hótel og aðra hagsmunaaðila.
Á þetta jafnt við um aðra þétt-
býlisstaði í fjórðungnum.
c. að tjaldstæði verði rekin sam-
kvæmt gildandi reglugerð. Lögð
verði áherzla á að samræma
gjaldtöku.
d. að leitazt verði við að hafa sund-
staði opna sem lengst yfir sumar-
mánuðina og þjóna þar með þörf-
um sem flestra.
FRÁ
UMFERÐAR-
RÁÐI
Á fundi hinn 26. nóvember 1980
samþykkti umferðarráð eftirfarandi
álvktun:
Umferðarráð samþykkir að mœla með
því, að notkun öryggisbelta í framsœtum
bifreiða verði hiðfyrsta lögboðin.
Umferðarráð vísar til þess,
1. að brýna nauðsyn ber til að vinna
gegn hörmulegum afleiðingum
umferðarslysa,
2. að sannað er m. a. með læknis-
fræðilegum rannsóknum, að með
notkun öryggisbelta má draga
verulega úr fjölda látinna og slas-
aðra ökumanna og farþega í
framsætum bifreiða,
NOTKUN ÖRYGGISBELTA
I BIFREIÐUM LÖGBOÐIN?
3. að ekki er fyrirsjáanlegt, að fram
komi annar búnaður til öryggis, er
komið geti í stað öryggisbelta,
4. að öryggisbelti eru i öllum fólks-
bifreiðum og sendibifreiðum, sem
skráðar hafa verið eftir 1. janúar
1969, eða 1 a. m. k. 80% slíkra bif-
reiða,
5. að ekki mun unnt með kynningu
eða áróðri eða endurbótum á gerð
öryggisbelta að auka, svo að full-
nægjandi verði talið, notkun
þeirra umfram þá notkun, sem nú
er,
6. að Norðurlandaráð hefur mælt
með því, að komið verði á lögboð-
inni notkun öryggisbelta,
7. að annars staðar á Norðurlöndum
og í mörgum ríkjum öðrum hafa
verið í gildi ákvæði, er mæla fyrir
um notkun öryggisbelta í fram-
sætum bifreiða,
8. að reynsla þessara þjóða af lög-
boðinni notkun öryggisbelta er
góð.
Af framangreindum ástæðum
hvetur umferðarráð til þess, að notk-
un öryggisbelta í framsætum bifreiða
verði hið fyrsta lögboðin, og að við
mótun lagareglna um þetta efni verði
fylgt tillögum Norræna umferðar-
öryggisráðsins og þær lagaðar að
sér-íslenzkum aðstæðum.
S\’E1TARSTJÓRNARMáL