Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 63

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 63
sem tekur við mjólk af öllu norðan verðu Snæfellsnesi og allt vestur til Reykhóla. Sláturhúsið, sem auðvitað er vatnsfrekasta fyrirtækið á haustin, tekur við sláturfé úr flestum hreppum Dalasýslu og af Skógarströnd.“ „Að lokum er rétt að taka fram,“ sagði Marteinn, „að ráðamer.n í fjár- málum hafa tekið erindi okkar varð- andi vatnsveituna af miklum skiln- ingi. Ein af frumþörfum mannsins er vatn, og viðgangur byggðarlagsins og atvinnulíf var í bráðri hættu, ef ekki hefði tekizt að ráða bót á því vand- ræðaástandi, sem rikt hefur i vatns- málum byggðarlagsins.“ „Það má einnig koma fram,“ sagði Marteinn, „að vatnsveitan hefur reynzt vel i vetur og allir eru afar ánægðir með hana.“ Pípurnar frá Reykjalundi soðnar saman. ustu rithöfunda Þýzkalands. Við- stödd afhendinguna voru Ögmundur Guðmundsson, formaður bókasafns- stjórnar, og Maria Loebell, þýzku- kennari við Fjölbrautaskóla Suður- nesja ásamt bæjarbókaverði. Meðfylgjandi mynd var tekin, þegar Heinz Pallasch afhenti hina þýzku bókagjöf. Þýzk bókagjöf Þriðjudaginn 14. október afhenti Heinz Pallasch, vestur-þýzkur sendi- Frá afhendingu vestur-þýzku bókagjafarinnar. Á myndinni eru, falið frá vinstri: Hilmar Jónsson, bæjarbókavörður, Ögmundur Guðmundsson, form. bóka- safnsstjórnar, Maria Loebell, þýzkukennarl og Heinz Pallasch, sendiráðsfulltrúi. Myndina tók Ljósmyndastofa Suðurnesja. ENDURBÆTUR Á HÚSNÆÐI BÆJARBÓKASAFNS KEFLAVÍKUR Bæjarbókasafn Keflavíkur fluttist árið 1974 i ný húsakynni á Mánagötu 7, sem er þriggja hæða einbýlishús. Nú í október 1980 hefur þessu húsi endanlega verið breytt í mjög snoturt safn. Umsjón með þvi verki hefur haft Karl Jeppesen, arkitekt. í sumar var húsið málað að utan, og nú í haust voru tekin í notkun í kjallara þrjú herbergi, sem áður voru ónotuð. I kjallara hússins eru dagblöð, tímarit og fræðibækur ásamt mjög góðu úr- vali erlendra bóka. Á miðhæð er barnadeild og útlánasalir. Á efstu hæð lesherbergi fyrir fræðimenn eða námsfólk. Þá er þar geymt úrklippu- safn um sögu Suðurnesja. Ennfremur vinnuherbergi starfsfólks. Mörg mál- verk eftir Suðurnesjamennina Áka Gránz, Kristin Reyr, Helga S. Jóns- son og Þorstein Eggertsson prý'ða veggi. ráðsfulltrúi, safninu mjög myndarlega gjöf frá Martin-Behaim-félaginu. Þetta eru 110 bækur á þýzku, og er þar að finna verk eftir marga þekkt- SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.