Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 65
FERÐAMÁLANEFND SAUÐÁRKRÓKS
í byrjun núverandi kjörtímabils
var á Sauðárkróki kosin þriggja
manna ferðamálanefnd. Formaður
hennar er Jón Karlsson, bæjarfulltrúi
og formaður Verkalýðsfélagsins
Fram.
Nefndin hefur unnið að ýmsum
verkefnum á sl. ári, ýmist sjálf eða i
samstarfi við áhugamannafélög á
Sauðárkróki.
Nefndin lét hanna og gefa út vegg-
spjald með myndum frá Sauðárkróki,
og hefur því verið dreift um allt land,
auk þess sem ferðamálaráð hefur það
til dreifingar innan síns dreifikerfis.
f undirbúningi er ferðamanna-
bæklingur fyrir Skagafjörð, og verður
hann unninn og kostaður til jafns af
sýslu og bæ.
Þá var tjaldstæði sett upp á Sauð-
árkróki með fyrsta flokks aðstöðu.
Tjaldstæði er við hliðina á sundlaug
Sauðárkróks. Verkið unnu Kiwanis-
félagar á Sauðárkróki.
Við heimreiðar til bæjarins hafa
verið settar upp tvær upplýsingatöfl-
ur með uppdrætti af Sauðárkróki og
þar merktar inn helztu stofnanir og
fyrirtæki í bænum. JC-félagar eiga
heiðurinn af því framtaki, auk þess að
gefa út götukort af bænum í stóru
upplagi. Bréf hefur nýlega verið sent
kaupmönnum bæjarins, þar sem þeir
eru hvattir til að hafa á boðstólum
ýmsan varning fyrir ferðamenn auk
minjagripa. Unnið er að því að örva
heimamenn til þess að framleiða
minjagripi og opna hugi fyrir því, að
ferðamennska er arðvænleg og æski-
leg atvinnugrein.
Margir möguleikar eru enn van-
nýttir í Skagafirði í ferðamálum.
Verulega mætti auka straum ferða-
manna til Hóla, út í Drangey og á
fleiri eftirsóknarverða staði í hérað-
inu.
SAMEINAST UM ÁTAK
í ÖLDRUNARMÁLUM
Á seinasta ári tókst samstarf milli
sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og
bæjarstjórnar Sauðárkrókskaupstað-
ar um uppbyggingu öldrunarmála i
Skagafjarðarsýslu. Skipuð var sex
manna öldrunarnefnd með þremur
fulltrúum frá hvorum aðila, og er hún
jafnframt byggingarnefnd vegna
fyrirhugaðs átaks í byggingarmálum
aldraðra. Nefndina skipa frá sýsl-
unni: Gunnlaugur Steingrímsson,
Hofsósi, Þórarinn Jónasson, Hróars-
dal, oddviti Rípurhrepps, og Sigurð-
ur Jónsson, Reynistað í Staðarhreppi,
allt sýslunefndarmenn, og frá kaup-
staðnum bæjarfulltrúarnir Hörður
Ingimarsson, Friðrik J. Friðriksson,
héraðslæknir, og Sæmundur Her-
mannsson, sjúkrahúsráðsmaður, sem
jafnframt er formaður nefndarinnar.
Til þess að létta undir við þann
mikla kostnað, sem væntanlegar
framkvæmdir óhjákvæmilega hafa i
för með sér, er í undirbúningi alls-
herjar fjársöfnun í Skagafirði að hætti
þeirra hjúkrunarheimilismanna í
Kópavogi. Viðræður hafa átt sér stað
við Húsnæðisstofnun ríkisins svo og
landlæknisembættið og verkefnið
hvarvetna hlotið jákvæðar undirtekt-
ir, enda brýnt.
„Skortur á vistrými fyrir gamalt,
lasburða fólk er tilfinnanlegur í
Skagafirði, og höfum við dregizt aftur
úr nágrannabyggðum allmjög hvað
þetta varðar," sagði Friðrik Á. Brekk-
an, félagsmálastjóri á Sauðárkróki í
samtali nýlega um þetta efni. Það,
sem byggja á, eru dvalaríbúðir fyrir
aldraða á Hofsósi og í Varmahlíð,
5—6 íbúðir á hvorum stað, og hjúkr-
unarheimilisdeild í tengslum við
sjúkrahús Skagfirðinga á Sauðár-
króki. Er henni ætlað að rúma um 30
manns.
öldrunarnefndin hefur gefið út
kynningarrit um starfsemi sína og því
verið dreift inn á öll heimili í Skaga-
firði fyrir milligöngu umboðsmanna-
kerfis, sem nefndin hefur fengið til
starfa í héraðinu. 16 umboðsmenn
eru í hreppunum og 14 á Sauðár-
króki. Héraðinu er skipt í söfnunar-
einingar. Sauðárkróki hefur þannig
verið skipt í 14 hverfi, og munu full-
trúar frá hinum ýmsu félagasamtök-
um vinna með nefndinni að söfnun
fjármagns. Ætlunin var að hefja
söfnunina formlega 20. febrúar, en
nefndinni hefur þegar borizt frá ein-
staklingum gjafafé, er samtals nemur
um 10 millj. gamalla króna.
Undanfari þessa fyrirhugaða átaks
í málefnum aldraðra í Skagafirði var
skýrsla, sem unnin var á vegum Hús-
næðismálastofnunar ríkisins á árinu
1978 af Ásdísi Skúladóttur, félags-
fræðingi, og Gylfa Guðjónssyni, arki-
tekt, en frá henni var greint í Sveit-
arstjórnarmálum 1. tbl. 1979.
SVEITARSTJÓRNARMÁL