Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Síða 66
18 SVEITARFÉLÖG HLUTU
SAMT. 105MILLJ. KR. í
STYRKI TIL VATNSVEITNA
Árlega veitir Alþingi nokkurri fjár-
hæð á fjárlögum félagsmálaráðu-
neytinu til ráðstöfunar til þess að
styrkja vatnsveituframkvæmdir
sveitarfélaga samkvæmt lögum um
aðstoð til vatnsveitna nr. 93/1947.
Samkvæmt þeim lögum er félags-
málaráðuneytinu heimilt að veita
sveitarfélagi styrk, sem nema má allt
að helmingi kostnaðar við stofnæðar,
vatnsgeyma, dælur og jarðboranir.
Styrkurinn skal þó aðeins veittur, að
fyrirsjáanlegt sé, að sveitarfélög geti
ekki með hæfilegum vatnsskatti stað-
ið straum af stofn- og rekstrarkostnaði
veitunnar, svo vitnað sé til 4. gr. lag-
anna.
Á fjárlögum fyrir árið 1980 var 105
millj. krónum varið i þessu skyni. Þar
af fengu tvö sveitarfélög 20 og 15
millj. kr. hvort, þannig að 70 millj.
króna komu til skipta milli 16
sveitarfélaga, sem sóttu um styrki frá
ráðuneytinu, skv. framangreindum
lögum. Samkvæmt skilgreiningu
þeirra um styrkhæfar framkvæmdir,
gátu þessi sveitarfélög hlotið samtals
195.9 millj. króna í styrki, en til ráð-
stöfunar voru til þeirra 70 milljónir
króna, eins og áður segir. Þvt var út-
hlutað, og komu þessar 70 milljónir i
16 staði. Þrjú sveitarfélög hlutu 18, 15
og 8 millj. kr. hvert eða samtals 41
millj. króna, og voru þá eftir 29 millj.
króna, sem skiptust á milli 13
sveitarfélaga. Styrkirnir námu frá 5
millj. króna niður í 900 þús. króna.
Á fjárlögum fyrir árið 1981 eru 170
millj. gamalla króna eða 1.7 millj.
nýkróna til vatnsveitustyrkja. Út-
hlutun fer oftast fram fyrri hluta árs,
eða í marz- aprilmánuði, og þurfa
sveitarfélög, sem vilja koma til greina
með að fá hlutdeild í þessum styrkj-
um, að senda félagsmálaráðuneytinu
umsókn um slíkan styrk.
Umsókn þurfa að fylgja uppdrætt-
ir af þeim mannvirkjum, sem sótt er
um styrki til, og þarf ráðherra að
samþykkja þá. Ennfremur kostnað-
aráætlun um framkvæmdirnar eða
yfirlit um áfallinn kostnað. Vega-
málastjóri er ráðunautur félagsmála-
ráðuneytisins í þessum efnum og
yfirfer umsóknir sveitarfélaganna,
uppdrætti og kostnaðaráætlanir.
Auk þess að veita styrki samkv.
framansögðu er félagsmálaráðuneyt-
inu heimilt 'að veita ríkisábyrgð á
lánum til vatnsveitna, en samanlagt
mega styrkir og lán, sem veitt eru með
rikisábyrgð, eigi fara yfir 85% af
stofnkostnaði allrar veitunnar.
Heimilt er félagsmálaráðuneytinu
að veita hliðstæða fyrirgreiðslu, er
sveitarfélög kaupa vatnsveitu, sem er
í einkaeign.
SVEITARSTJÓRNIR Á NORÐURLANDI
ÁLYKTA UM BLÖNDUVIRKJUN
Svohljóðandi ályktun var nýlega
samþykkt samhljóða á hrepps-
nefndarfundi í Hvammstangahreppi
í Vestur-Húnavatnssýslu:
„Hreppsnefnd Hvammstanga-
hrepps skorar á iðnaðarráðherra að
beita sér fyrir því, að ákvörðun verði
tekin um virkjun Blöndu sem næsta
áfanga í virkjunarmálum þjóðarinn-
ar.
I því sambandi er bent á niður-
stöður rannsókna, sem benda til mik-
illar hagkvæmni Blönduvirkjunar,
auk augljósra staðreynda varðandi
heppilega staðsetningu hennar gagn-
vart dreifikerfum og ennfremur, að
þessi virkjun er utan eldvirkra svæða.
Hér er um mikið hagsmunamál
norðlenzkra byggða að ræða, og mega
skammsýn sjónarmið ekki verða til
þess að tefja framgang þessarar
mikilvægu framkvæmdar. Því er lögð
áherzla á, að samningum við land-
eigendur verði hraðað.“
Á fundi hreppsnefndar Sveins-
staðahrepps, Austur-Húnavatnssýslu
þann 11. desember 1980 var sam-
þykkt samhljóða svohljóðandi álykt-
un:
„Hreppsnefnd Sveinsstaðahrepps
telur mikla nauðsyn, að næsta virkjun
verði Blönduvirkjun. I fyrsta lagi af
öryggisástæðum fyrir landið allt, þar
sem orkuverið yrði utan eldvirkra
svæða. 1 öðru lagi býr Norðurland við
óviðunandi ástand í orkumálum,
meðan meginhluti raforkunnar kem-
ur frá fjarlægum orkuverum. í þriðja
lagi nýtist veikt dreifikerfi bezt með
virkjun í Blöndu.
Af framangreindum ástæðum
skorar sveitarstjórn Sveinsstaða-
hrepps á orkumálaráðherra að hefja
nú þegar samningaviðræður við
landeigendur Auðkúlu- og Ey-
vindarstaðaheiða og stuðla á annan
hátt að virkjun Blöndu sem for-
gangsverkefnis á sviði orkuöflunar.
Ennfremur skorar hreppsnefndin á
þingmenn kjördæmisins, að þeir beiti
sér fyrir því, að Blönduvirkjun verði
næsta virkjun i landinu.“
Hliðstæðar ályktanir hafa verið
gerðar í fleiri hreppum á Norðurlandi
vestra að undanförnu svo og í báðum
kaupstöðunum á svæðinu, Sauðár-
króki og á Siglufirði.
SVEITARSTJÖRNARMÁL