Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Blaðsíða 9
MAGNÚS ODDSSON, bæjarstjóri:
AKRANESKAUPSTAÐUR
FJÖRUTÍU ÁRA
Norðan við mynni Hvalfjarðar gengur nes út í
Faxaflóa, sem nefnt er Akranes. Akrafjall stendur á
miðju nesinu, sem annars er láglent og gróðursælt.
Nafnið er dregið af kornrækt og akurlendi.
I heimildum er greint frá ]rví, að strax árið 1000 er
sótt korn á Akranes. Jafnvel er talið, að korn frá
Akranesi hafi verið flutt út á 14. öld. Akuryrkju
Skagamanna má vafalaust rekja til góðra landkosta
og veðurskilyrða fyrr á öldum, og enn í dag eru
landkostir ágætir og veðurfar gott.
Sögulegt yfírlit
Tveir irskir bræður, Þormóður og Ketill Bresa-
synir, námu Akranes á síðari hluta landnámsaldar. I
landnámi þeirra tóku fleiri irskir menn sér bólsetu.
Hér á Akranesi, á Kjalarnesi og í Botni í Hvalfirði
reis kristin írabyggð, sem er sérstæð i landnámssögu
Islands. Vhrðast Irarnir með nábýli hafa leitað
stuðnings hver annars gagnvart hinum heiðnu nor-
rænu landnemum. Asólfur Alskik var dóttursonur
Ketils Bresasonar. Hann kom til landsins austur á
fjörðum, en settist að undir Evjafjöllum, þar sem
Asólfsskáli heitir. Þau undur fylgdu honum, að hvar
sem hann kom, urðu öll vötn full af fiski. Eyfellingar
vildu ekki hafa svo fjölkunnugan mann nálægt sér
og hröktu hann á brott. Hann settist að á Kirkju-
bólstað á Akranesi í skjóli frænda sinna, og sagt er,
að fiskisæld hans hafi síðan fylgt Akurnesingum.
Skipakostur hefur sennilega alltaf verið talsverð-
ur. T. d. greina heimildir frá því, er Snorri Sturluson
fór stefnuför á Seltjarnarnes, kom ríðandi til Akra-
ness, fékk þar tvær ferjur og hafði 40 manns á hvorri.
Ferjuleið Akraborgarinnar er því ekki alveg ný af
nálinni. Annálar greina frá því, að árið 1428 braut
18 skip og báta af Akranesi í miklum sjávargangi.
Má af því sjá, að töluverð útgerð hefur þá verið á
Akranesi.
Um miðja 17. öld hóf Brynjólfur Skálholtsbiskup
stórútgerð á Skipaskaga. Hann eignaðist mikið af
Skaganum, sem var jörð á yzta tanga Akraness,
neðan núverandi Merkigerðis, sem er gata, er liggur
að vestan og sunnan við sjúkrahús Akraness. Við
þessa jörð eru Akurnesingar oft kenndir og kallaðir
Skagamenn.
Margs er að minnast úr sögunni, sem ekki er hægt
að tíunda hér. Skal þó nefnt eitt dæmi frá þeim tíma,
er svartnætti dönsku einokunarverzlunarinnar
grúfði yfir landinu. Jörðin Reynir eða Reyn er suð-
vestanvert við Akrafjall. I jarðabók frá 1706 kemur
fram, að þá bjó þar stórbóndinn Jón Hreggviðsson
og átti m. a. tvö tveggjamannaför og áttæring. Jón
SVEITARSTJÓRNARMÁL