Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Side 19
Akraneshöfn f Krossvfk á árlnu 1981. Efst tll vinstrl er Lambhúsasund, er markast af Vesturflös að norðan. Neðst tll vlnstrl er
Steinsvör og upp af hennl Brelðln, þar sem flest útgerðarfyrlrtækin eru. Neðst til hægri er Sementsverksmlðja ríkislns.
Lambhúsasund. Voru m. a. steyptir 2 stöplar undir
hana.
Árin 1944— 1945 var byggð ný bátabryggja um 70
m norðan við hafnargarðinn, og er hún samsiða
honum. Breidd bryggjunnar var um 8 m, en lengd
um 135 m, og náði hún fram á 3,5 m dýpi. Bryggju-
hliðarnar voru steyptar með grjótfyllingu á milli og
steyptri þekju. í undirstöður í framhluta bryggj-
unnar voru notuð 7 steypuker, 8 X 8 m að stærð.
Þess skal getið, að gerð hefur verið allstór upp-
fylling frá landi á milli bátabryggju og hafnargarðs.
Þar hefur verið byggð síldarverksmiðja.
Árið 1945 var hafnargarðurinn lengdur um 30 m.
Höfð voru í undirstöður þrjú steinsteypuker 10 X 10
m að stærð. Ofan á undirstöðuna voru hliðarveggir
bryggjunnar steyptir. Holrúm voru fyllt grjóti og möl
og steypt þekja. Skjólveggur var steyptur á útbrún.
Árin 1946—1949 var hafnargarðurinn lengdur
um 124 m. I undirstöðu voru notuð tvö svonefnd
innrásarker af B-gerð. Eru þau 62 m á lengd hvort og
um 13,5 m á breidd. Fyrra kerinu var sökkt í beinu
framhaldi af garðinum, þannig að innhliðar garðs-
ins og kersins voru í sömu línu. Síðara kerinu var
sökkt á ská út frá því fyrra, þannig að garðurinn
sveigist um 30° inn. Steypt var í skarðið milli kerja.
Hliðarveggir voru steyptir upp í fulla hæð, holrúm
fyllt og steypt þekja. Gerður var flái úr grjóti
meðfram úthlið garðsins. Skjólveggur var steyptur á
útbrún. Dýpi við fremra kerið var 8—9 m. Land-
gangur hafnargarðsins var einnig hækkaður upp á
um 150 m bili með grjótfyllingu á milli steyptra
útveggja, og þekja var steypt.
Sementsverksmiðjubryggjan
byggð 1956—1958
Sementsverksmiðjubryggjan svonefnda var aðal-
lega byggð á árunum 1956—1958, er þýzka verk-
fræðifyrirtækið Hochtief annaðist hafnarfram-
kvæmdir á Akranesi. Bryggjan myndar hafnargarð
með viðleguhlið austan við Ivarshúsavör og stefnir í
SSV og veitir höfninni nokkurt skjól í SSA-átt.
Landgangur bryggjunnar, sem er um 82 m lang-
ur, er grjótgarður með um 12 m breiðri steinsteyptri
akbraut. Næstu 80 m bryggjunnar eru gerðir úr 11
steinsteypukerjum, sem fyllt voru grjóti og möl. Of-
an á kerin var steypt 12 m breið þekja. Fremsti hluti
bryggjunnar var gerður úr „innrásarkeri“ af C-gerð,
en það er um 62 m á lengd og um 10 m á breidd. Var
gengið frá þv! á venjulegan hátt og steypt þekja.
Umhverfis enda bryggjunnar var rekið niður stálþil
til styrktar. Þess skal getið, að Sementsverksmiðja
ríkisins hefur látið byggja lokað færiband fram á
bryggjuna, og stendur það á steinstólpum um 5,5 m
ofan við steinþekjuna.
13
SVEITARSTJÓRNARMÁL