Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Side 24

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Side 24
Helztu kennistærðir garðs voru: Krónu-liæð + 9,0, flái 1:1,5, þykkt grjótkápu 3 m, stærð steina í yzta lagi 4—7 tonn og í innra lagi 0,5 — 3 tonn. A sama ári var lagður 220 m langur skjólgarður úr grjóti í Lambhúsasundi, nánar tiltekið frá enda grjótgarðs frá 1970 á Vesturflös að siglingarrennu í miðju Lambhúsasundi. Helztu kennistærðir voru krónuhæð + 7,0, flái að utan 1:1,5, flái að innan 1:1. Flokkað grjót var0,5 —5,0 tonn. Magn var 18.000 m3, þar af 50% kjarni. Kostnaður pr. m3yar 5000 kr. Framkvæmdir stóðu frá byrjun ágúst til 15. sept. Grjótframkvæmdir 1981 Á árinu 1981 hafa verið verulegar grjótfram- kvæmdir, þótt ekki hafi áætlanir verið um þær gerðar, enda kom til þeirra vegna skemmda í tveimur óveðrum. Flái garðsins lagaður með því að kasta út og sprengja dínamítpylsur neðansjávar. í veðri, sem gekk yfir 27. og 28. des. 1980, varð verulegt tjón á uppgerða garðinum frá 1980 undan miðjum einingavegg. Tók út ca. 2500 m3af flokkuðu grjóti og kjarna. Einkennandi var, að einingavegg- urinn og takmörkuð þykkt og gegndræpi garðsins hindruðu grjótið að drepa niður öldurnar. Lýsing hafnsögumanna á briminu þessa daga var langvarandi foráttubrim samfara tíðum einstökum ólögum í kringum flóð. Stærra eða jafnmikið brim nefna menn í sambandi við árin 1947 og 1958. Segja má, að neyðarástand hafi ríkt í höfninni, meðan brimið stóð yfir. Þrátt fyrir þetta urðu ekki aðrar skemmdir á garðinum en fyrst er getið um. Strax, er briminu slotaði, var hafizt handa við bráðabirgðaviðgerðir. Annað veður sýnu örlagaríkara gekk yfir garðinn 16. febr. Nokkuð þungur sjór var samfara miklum vindi (13—14 vindstig) af suðaustan. Engir sjónar- vottar voru að tjónunum á brimgarðinum, sem líklega hafa orðið um miðnætti, er fjara var lægst og loft- þrýstingur minnstur. Samkvæmt ummælum skip- stjóra var alda mjög kröpp, og skip létu illa í sjó. Skemmdir eftir óveðrið voru eftirfarandi: 1. Af enda garðsins tók út á 55 m kafla efstu 6 m garðsins. 2. 2 skörð mynduðust sitt hvorum megin við beygju í yztu grjótkápuna ca. 10 m breið, 1,5 m djúp og ca. 12 m löng. 3. Skarð rofnaði í grjótgarð undan einingavegg framan við skarðið, sem myndaðist í briminu í desember. Lengd þess var ca. 35 m og dýpt ca. 6 metrar. 4. Ymis göt mynduðust í kápuna á 5 — 6 stöðum á garðinum, eftir að nokkrum steinum hafði skolað út. Ummerki um núning milli steina sýna, að yzta kápan í brimgarðinum hefur öll verið meira eða minna á hreyfingu. Þrátt fyrir, að brimið hafi ekki verið í líkingu við brimið í desember, eru skemmd- arummerki eftir veðrið 16. febrúar miklu meiri, svo undrun sætir. Ástand var t. d. án allra vandræða innan hafnar, og öldur braut mun minna á skerjum en í veðrinu í desember. Áætlaður kostnaður við endurbætur og lagfær- ingar var 2,6 millj. kr., yrðu sömu þversnið lögð til SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.