Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Síða 24
Helztu kennistærðir garðs voru: Krónu-liæð
+ 9,0, flái 1:1,5, þykkt grjótkápu 3 m, stærð steina í
yzta lagi 4—7 tonn og í innra lagi 0,5 — 3 tonn.
A sama ári var lagður 220 m langur skjólgarður úr
grjóti í Lambhúsasundi, nánar tiltekið frá enda
grjótgarðs frá 1970 á Vesturflös að siglingarrennu í
miðju Lambhúsasundi. Helztu kennistærðir voru
krónuhæð + 7,0, flái að utan 1:1,5, flái að innan 1:1.
Flokkað grjót var0,5 —5,0 tonn. Magn var 18.000
m3, þar af 50% kjarni. Kostnaður pr. m3yar 5000 kr.
Framkvæmdir stóðu frá byrjun ágúst til 15. sept.
Grjótframkvæmdir 1981
Á árinu 1981 hafa verið verulegar grjótfram-
kvæmdir, þótt ekki hafi áætlanir verið um þær gerðar,
enda kom til þeirra vegna skemmda í tveimur
óveðrum.
Flái garðsins lagaður með því að kasta út og sprengja
dínamítpylsur neðansjávar.
í veðri, sem gekk yfir 27. og 28. des. 1980, varð
verulegt tjón á uppgerða garðinum frá 1980 undan
miðjum einingavegg. Tók út ca. 2500 m3af flokkuðu
grjóti og kjarna. Einkennandi var, að einingavegg-
urinn og takmörkuð þykkt og gegndræpi garðsins
hindruðu grjótið að drepa niður öldurnar.
Lýsing hafnsögumanna á briminu þessa daga var
langvarandi foráttubrim samfara tíðum einstökum
ólögum í kringum flóð. Stærra eða jafnmikið brim
nefna menn í sambandi við árin 1947 og 1958. Segja
má, að neyðarástand hafi ríkt í höfninni, meðan
brimið stóð yfir. Þrátt fyrir þetta urðu ekki aðrar
skemmdir á garðinum en fyrst er getið um.
Strax, er briminu slotaði, var hafizt handa við
bráðabirgðaviðgerðir.
Annað veður sýnu örlagaríkara gekk yfir garðinn
16. febr. Nokkuð þungur sjór var samfara miklum
vindi (13—14 vindstig) af suðaustan. Engir sjónar-
vottar voru að tjónunum á brimgarðinum, sem líklega
hafa orðið um miðnætti, er fjara var lægst og loft-
þrýstingur minnstur. Samkvæmt ummælum skip-
stjóra var alda mjög kröpp, og skip létu illa í sjó.
Skemmdir eftir óveðrið voru eftirfarandi:
1. Af enda garðsins tók út á 55 m kafla efstu 6 m
garðsins.
2. 2 skörð mynduðust sitt hvorum megin við beygju í
yztu grjótkápuna ca. 10 m breið, 1,5 m djúp og
ca. 12 m löng.
3. Skarð rofnaði í grjótgarð undan einingavegg
framan við skarðið, sem myndaðist í briminu í
desember. Lengd þess var ca. 35 m og dýpt ca. 6
metrar.
4. Ymis göt mynduðust í kápuna á 5 — 6 stöðum á
garðinum, eftir að nokkrum steinum hafði skolað
út.
Ummerki um núning milli steina sýna, að yzta
kápan í brimgarðinum hefur öll verið meira eða
minna á hreyfingu. Þrátt fyrir, að brimið hafi ekki
verið í líkingu við brimið í desember, eru skemmd-
arummerki eftir veðrið 16. febrúar miklu meiri, svo
undrun sætir. Ástand var t. d. án allra vandræða
innan hafnar, og öldur braut mun minna á skerjum
en í veðrinu í desember.
Áætlaður kostnaður við endurbætur og lagfær-
ingar var 2,6 millj. kr., yrðu sömu þversnið lögð til
SVEITARSTJÓRNARMÁL