Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Síða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Síða 25
grundvallar og fyrir voru, en þó með nokkuð strangari flokkun en áður. Framkvæmdir í gömlu grjótnámunni við Berja- dalsá hófust um mánaðamótin maí—júní. I lok mánaðarins sáu menn fram á, að ekki væri raunhæft að halda þar áfram vegna sífellt lægri prósentu stórs grjóts (niður í 3—5%). Eftir nokkurn aðdraganda, sem ég mun ekki rekja nánar hér, var ákveðið að fara í grjótnámu í landi Galtarvíkur í 20 km fjarlægð frá höfninni. Reynsla hafði áður fengizt við námu- vinnslu þar í sambandi við byggingu hafnarinnar á Grundartanga. I þessari námu höfum við svo unnið nánast samfellt til dagsins í dag með allgóðum árangri. Við höfum ekið þaðan öllum steinum sem eru stærri en 4 tonn. Á verktímanum hafa endurbæturnar sífellt verið til athugunar á garðinum. Miklar mælingar hafa verið framkvæmdar bæði frá landi og sjó, vísinda- menn heima og erlendis fengnir til ráðuneytis. Gisli Viggósson gerir þessu efni nánari skil, og mun ég því ekki fara nánar út í þetta og það þversnið, sem end- anlega var svo unnið eftir. Ég get þess þó i lokin, að horfur eru á, að kostn- aður í ár muni fara upp í tæpar 4 millj. kr. Það, sem veldur þar mestu um, er breytt og aukið þversnið með svo til eingöngu stóru grjóti og fjarlægð námu frá höfn. Grjótnámsvinnsla og grjótgarðsgerð Á Akranesi á að vera fengin allgóð reynsla frá verkum síðustu ára í grjótvinnslu og grjótgarðsgerð, og er rétt að drepa hér á helztu atriðin því viðvíkj- andi: Grjótnám það, sem valið er, er ákvarðandi um hagkvæmni verksins. Því þarf að vera nægur tími i verkbyrjun eða áður til athugana og rannsóknar- borana. Oft hindra umhverfissjónarmið, að leyfi fáist til grjótvinnslu; því þarf, áður en til rannsókna kemur, að liggja fyrir vilyrði til námureksturs. Önnur atriði í beinu sambandi við hagkvæmnina eru: fjarlægð námu frá garði, aðstaða til flokkunar í námu eða við hana. Fjárveitingar til hafnamála eru oftast óbreytanleg tala ár hvert. Augljós er ]dví í okkar verðbólgulandi mismunur þess að vera með framkvæmdir í gangi snemma árs eða síðla árs, auk þess sem mun auð- veldara er að útvega tæki og ná samningum við tækjaeigendur snemma árs en síðla. Lág einingaverð í grjótvinnslu fást ekki nema tækjakostur og tækjamenn séu góðir. Síðastliðin 6 ár hefur höfnin skipt að mestu við sömu tækjaeigendur, sem lagt hafa til verksins ný og góð tæki, sem reyndir tækjamenn hafa stjórnað. Mikilvægast af öllu er þó, að það hönnunarsnið, sem unnið er eftir, taki mið af grjótnámi, þ. e. a. s. af flokkun, stærð steina og dreifingu þeirra. Möguleiki ætti að vera innan vissra marka að aðlaga sig námu með breytilegum þykktum á kápu, stærðarflokkum og fláa. Raunhæfasti möguleiki til útlagningar grjóts á Gengið frá garðsenda, kápu og krónu við verkáfangalok 1978. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.