Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 26

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 26
meira dýpi en 6 m er með grjótpramnra. Þó má geta þess, að frarn til 1979 hefur okkur tekizt að ná réttu formi fláa með þvi að nýta tilfallandi sjólög, sem komu á framkvæmdatímanum og að nota dína- mítpylsur til að sprengja fláann fram. Kostnaður við akstur á grjóti er verulegur hluti heildarkostnaðar, og vaxandi, eftir því sem fjarlægð nárnu vex. Þvi væri mikill ávinningur að geta flutt grjótið með stórum sérhæfðum grjótflutningabílum. En hér kemur á móti heimamannasjónarmið gagn- vart þeim bílaflota, sem fyrir er á stöðunum. Ut- lagning yztu kápuklæðningarinnar með steinum á Flokkuðu grjóti raðað í kápu og krónu á árinu 1981. bilinu 6—12 tonn er erfið, fáist ekki til þess stórir kranar með vökvadrifinni slökun. Steinar vilja ann- ars brotna við útlagninguna. Manivotockrani Hafnamálastofnunar er stór og mikill, en hann vantar allan útbúnað til góðrar slökunar. Annað, sem hefur mikil áhrif á útlagninguna, eru grjóttengurnar, en þær eru efnismiklar og þungar (3 — 5 tonn) og hafa þar af leiðandi mikil áhrif á útlagnmgarfjarlægð kranans. Nauðsynlegt er, að hannaðar og smíðaðar verði léttari grjóttangir eða það, sem enn betra væri, að þróuð yrði upp aðferð til að setja út stóra steina án grjóttanga. Við þetta fæst verulega stærri útlagningarradíus, steinar brotna síður við útlagninguna, þeir leggjast betur í kápuna og stjórnun upphleðslunnar verður auðveldari og hnitmiðaðri. Ég er þess fullviss, að lausn finnst á þessu; það vantar aðeins tíma og peninga til að þróa hana. Einnig má geta þess í framhaldi af þessu, að nauð- synlegt er að þróa heppilegri aðferðir til að kljúfa stóra steina. Það hefur oft verið sárt að sjá t. d. 20 tonna stein brotna í marga smáa við sprengingu. Augljóst er, að grjót verður i vaxandi mæli notað við hinar ýmsu lausnir hafnarframkvæmda, enda hefur það nú þegar ýtt til hliðar hefðbundnum steinsteypukerjalausnum síðustu 50 ára. Því er nauðsynlegt, að svigrúm fáist til að þróa nýjar og bættar aðferðir til grjótvinnslu, við flutninga og við grjótútlagningu i garða. Timi til þessara hluta er yfirleitt ekki fyrir hendi í sjálfum verkunum, þar sem þau hefjast yfirleitt of seint og án nokkurs teljandi fyrirvara, og eftir að verk er hafið, er það algerlega háð kapphlaupinu við tíma og kostnað. Ef fullnýta á dýran tækjakost, má hvergi slá af, svo ekki myndist flöskuhálsar í vinnu- keðjunni, enda er dagskostnaður oft á bilinu 50.000-60.000 kr. Enginn skal þó taka orð mín þannig, að engin þróun hafi verið. Miklar framfarir hafa orðið t. d. við boranir og sprengingar á undanförnum árum og það miklar, að einingaverð á grjóti hefur hækkað verulega minna en verðlagsvísitölur. Einhver kann að spyrja: Er ekki óhagkvæmt að skipa framkvæmdum á svo mörg ár? Hér á Akranesi hefur verið unnið í 6 ár við sama grjótgarðinn, þannig að hann hefur lengst ár hvert í samræmi við fjárfestingu. Þetta er í sjálfu sér hárrétt, sérstaklega vegna þess, að vinnubrögð og verkaðferðir eru í megin- dráttum þær sömu ár hvert. Kostnaður hækkar vegna þess, að brúa þarf svo oft milli verkbyrjana og verkloka; aukakostnaður verður vegna tækjaflutn- inga, færni og þjálfun nýtist ekki eins vel og um sam- fellt verk væri að ræða, og margt annað kemur til. Þarna er komið að einu aðalmeini hafnar- gerðar á íslandi. Fjármagn til hafnargerða er alltof lítið ár hvert, og því er dreift alltof mikið hverju sinni. Til frekari undirstrikana á þessu get ég nefnt, að dýpkunarskipið nýja, Grettir, afkastamikið dýpkunarskip, sem unun er að sjá vinna, er það dýrt, að fjárveitingar til hinna ýmsu hafna landsins standa vart undir lengri en 2 — 3 vikna viðskiptum. Mikill timi og kostnaður fer því í flutning milli staða, auk þess sem skipið er verkefnalaust hluta ársins vegna skorts á framkvæmdafé, þrátt fyrir að ekki skorti verkefni. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.