Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Page 46

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Page 46
spurningalistar til allra hafnarstjórna, þar sem beðið var um hugmyndir þeirra um hafnarframkvæmdir næstu 4 árin ásamt ýmsum upplýsingum um hafn- irnar, umferð og rekstur. Á grundvelli þeirra svara og þess fjármagns, sem samgönguráðuneytið áætl- aði, að til ráðstöfunar yrði til hafnargerða á árunum 1975 — 78, var samin ný áætlun að formi til mjög svipuð hinni fyrri, en nú í mun nánara samráði við heimamenn. Fastmótaða byggðastefnu vantar Áætlun þessi var lögð fyrir Alþingi, en var aldrei samþykkt sem þingsályktun. Við gerð þessarar áætlunar, eins og hinnar fyrri, kom i ljós, að mjög skorti á, að heilsteypt byggðapólitík væri til, mótuð af ríkisvaldinu. Svo er ekki enn, og hafa allar seinni áætlanir, þ. e. áætlanir áranna 1977—80, 1979—82 og 1981—84, verið brenndar sama marki, þ. e., að fastmótuð byggðastefna hefur engin legið fyrir af hálfu ríkisstjórnar eða Alþingis. Þetta hefur haft þær afleiðingar, að meginmarkmið áætlananna hefur á hverjum tíma verið að bæta úr brýnustu þörf á sem flestum stöðum. Þörfin fyrir hafnargerðir er mjög mikil, og má segja, að það fé, sem til þessara hluta hefur verið varið, sé allt of lítið til að hægt sé að veita öllum viðunandi úrlausn, þannig að séð sé fyrir flutningum og þörf fiskiflota hinna ýmsu staða. Afleiðingin hefur verið sú, að í hvert sinn, sem ný áætlun hefur komið út, hafa heyrzt óánægjuraddir vegna þess að of lítið sé áætlað á þennan eða hinn staðinn. Og að sjálfsögðu má ávallt um það deila, hvort rétt hefur verið skipt hinu takmarkaða fé, sem til ráðstöfunar var, en meginsjónarmið Hafnamála- stofnunar hefur þó ætíð verið að bæta úr brýnustu þörfum, jafnvel þótt ekki sé ávallt um það að ræða, að á þann máta fáist hinar hagkvæmustu lausnir, hvorki hvað varðar framkvæmdahraða né mann- virkjagerð. Eitt er það, sem og hefur valdið miklum erfiðleik- um við alla áætlanagerð, það eru hinar snöggu breytingar, er verða á notkun hafna á hinum ýmsu stöðum. Greinilegasta dæmi þess var tilkoma skuttogar- anna, skipa, sem kröfðust algjörlegra nýrra hafnar- mannvirkja, mun meira dýpis en almennt hafði verið talið nægjanlegt í fiskihöfnum og þar að auki meira skjóls en hægt var að veita i mörgum höfnum. Svipaða sögu má segja um tilkomu hinna stóru loðnuskipa og snöggu breytinga á síldveiðum lands- manna. Allt þetta hefur gert hafnaþörfina mun meiri en áður var, og i mörgum tilvikum liggur við, að heimafloti sé ekki lengur ákvarðandi um þörf mannvirkja, heldur ákvarðist hún af tilkomu að- komuskipa. Þetta hefur gert j:>að að verkum, að mjög miklar breytingar hefur orðið að gera frá fyrstu hugmyndum um hafnaraðstöðu á mörgum stöðum og þarfirnar og kröfurnar fyrir aukna aðstöðu hafa verið langt umfram getu hafnarsjóðanna. Gerð áætlana um einstakar hafnir Kem ég þá að þeim þætti, er snýr að hafnarstjórn- um og eigin áætlanagerð þeirra. Til grundvallar áætlunargerðar um hafnirá öllu landinu liggja fyrir óskir heimamanna um framkvæmdir, og þær óskir, eins og ég sagði áður, eru langt umfram það fjár- magn, sem talið er hæfilegt til hafnabóta. Þessar óskir eru misjafnlega raunhæfar meðal annars vegna þess, að hafnarsjóðir gera almennt ekki grein fyrir því, á hvern hátt þeir ætli að standa undir sínum hluta kostnaðar, en, eins og vitað er, greiðir ríkis- sjóður mest 75% kostnaðar við hafnarmannvirki. Nú hin seinni ár hefur Hafnabótasjóður í vissum tilvikum bætt þar við styrkjum, sem svarar til 15% byggingarkostnaðar. Hafnarsjóðirnir sjálfir jrurfa því aðeins, í mörgum tilfellum, að sjá um 1 tíunda hluta þess kostnaðar, er fellur til við hafnargerðina. Þrátt fyrir þetta hefur það margoft komið fyrir, að sveitarstjórnir og hafn- aryfirvöld hafa ekki getað staðið undir sinum hluta kostnaðarins, og hefir það valdið erfiðleikum við framkvæmdir verkanna. Nauðsynlegt er, að hafnarstjórnir og sveitar- stjórnir geri sér vel ljósa þá ábyrgð, sem þær takast á hendur með því að óska eftir framkvæmdum í höfnum, þ. e. þá fjárhagslegu ábyrgð, sem þær bera á sínum hluta kostnaðar, en oft virðist skorta talsvert á, að svo sé. SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.