Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 51

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 51
SATS — SAMTÖK TÆKNIMANNA SVEITARFÉLAGA FIMM ÁRA Samtök tæknimanna sveitarfélaga voru stofnuð 23. apríl 1976, og hafa því starfað í 5 ár á árinu 1981. Markmið félagsins er, eins og segir i lögum þess, að: 1. Stuðla að þróun tæknimála sveitarfélaga á fslandi. 2. Auka almennan skilning á þýð- ingu tæknisviðs sveitarfélaganna. 3. Vinna að bættri menntun og aukinni fagþekkingu félags- manna. 4. Byggja upp samvinnu við Samtök ísl. sveitarfélaga og aðra aðila, sem vinna að tæknimálum sveitarfé- laga. 5. Koma á tjáskiptum um verk- fræðileg málefni sveitarfélaga meðal félagsmanna, t. d. með fundarhöldum og umræðu í fjöl- miðlum. Félagið tekur ekki afstöðu til launa — né annarra starfskjara félags- manna. Aðalhvatamaður að stofnun fé- lagsins var Vilhjálmur Grímsson, bæjartæknifræðingur í Keflavík. Var hann kosinn formaður við stofnun félagsins og gegndi því starfi, þar til hann baðst undan endurkosningu á 6. aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Egilsstöðum 24. apríl s. 1. Stjórn Sats Bjarni Þór Einarsson, bæjartækni- fræðingur á Húsavík, var á fundinum kosinn formaður í stað Vilhjálms, og aðrir í stjórn voru kosnir: Gunnar Jóhannesson, verkfræðingur, Akur- eyri; Sveinbjörn Steingrímsson, bæjartæknifr., Dalvík; Björn Árna- son, bæjarverkfr., Hafnarfirði og Vil- hjálmur Grimsson, bæjartæknifr. í Keflavík. Veröbanki kynntur Auk aðalfundarstarfa á Egilsstöð- um kynntu Finnur Jónsson og Hall- grimur Hallgrimsson, verkfræðingar hjá verkfræðistofunni Hönnun hf., fyrir fundarmönnum notkun verð- banka, sem fyrirtæki þeirra hefur sett upp. 1 tengslum við fundinn var farið í kynnisferð til Reyðarfjarðar og Eskifjarðar undir leiðsögn heima- manna, auk þess sem aðstæður voru skoðaðará Egilsstöðum. Félagið hefur frá upphafi unnið að markmiðum sínum með fræðslu- fundum og kynnisferðum og enn- fremur með störfum sérstakra nefnda að upplýsingamiðlun um sérstaka þætti tæknimála sveitarfélaga, svo sem gatnagerð, sorphreinsun og sorp- eyðingu, frárennslislagnir og hol- ræsagerð, vatnsveitur og hitaveitur. Einnig hefur félagið frá stofnun verið þátttakandi i norrænu samstarfi um tæknimál sveitarfélaga með þátttöku í „Nordiska Kommunal- tekniska Samarbetskommittén“. Haustfundur SATS 27. nóvember Hinn árlegi haustfundur samtak- anna var haldinn að Hótel Loftleið- um hinn 27. nóvember sl. Guðmundur Björnsson, mælingaverk- fræðingur, flutti fyrirlestur um aðal- efni fundarins, sem var þéttbýlis- mælitækni. Gunnar Eydal, lögfræðingur, flutti erindi um lagalega ábyrgð sveitarfé- laga á mælingum, sem gerðar eru af starfsmönnum þeirra eða á þeirra vegum. f tengslum við efni fundarins hélt innflutningsfyrirtækið fsól hf. sýn- ingu á mælitækjum, sem það flytur inn. Stjórnunarnámskeið Loks er i undirbúningi á vegum fé- lagsins stjórnunarnámskeið, sem sér- staklega verður sniðið að jtörfum tæknimanna sveitarfélaga. Námskeið þetta er undirbúið i samvinnu við Stjórnunarfélag fslands. ATVINNA VIÐ HÆFI FATLAÐRA Rikisstjórnin hefur beint svohljóð- andi tilmælum til forstöðumanna opinberra stofnana og fyrirtækja, svo og atvinnurekenda almennt: „f tilefni alþjóðaárs fatlaðra hafa íslenzk stjórnvöld beitt sér fyrir margvíslegum aðgerðum, sem miða að því að auka þátttöku fatlaðra i þjóðlífinu og jafnrétti þeirra og ann- arra þjóðfélagsþegna. Rikisstjórnin telur brýna þörf á sérstöku átaki i atvinnumálum fatl- aðra og beinir því þeim tilmælum til forstöðumanna opinberra stofnana og fyrirtækja að þeir kanni gaum- gæfilega, hvaða störf á þeirra vegum henti öryrkjum sérstaklega og öðrum með skerta starfsorku og að þeir, sem þannig er ástatt um, verði látnir sitja fyrir slikum störfum. Jafnframt beinir rikisstjórnin þeim tilmælum til atvinnurekenda al- mennt, að þeir stuðli eftir fremsta megni að eðlilegri atvinnuþátttöku fatlaðra. Til þess að vera forstöðumönnum til ráðuneytis við val hentugra starfa fyrir öryrkja, skal félagsmálaráðherra skipa samstarfsnefnd fulltrúa ráðu- neytisins og samtaka öryrkja. Þá samþykkir ríkisstjórnin að hefja við- ræður við aðila vinnumarkaðarins um þessi mál.“ SVEITARSTJÖRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.