Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Síða 59

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Síða 59
fundarbók, en í öllum hinum fylgdi fundargerð vélritað eintak úrskurðar. Úrskurðirnir voru rök- studdir á þann hátt, að rakin voru afskipti barna- verndarnefndar og félagsmálastofnunar af foreldr- unum og börnum þeirra, getið úrræða þeirra, sem gripið hafði verið til, og árangurs af þeim. I úr- skurðarorði voru foreldrar, ýmist annað eða bæði, svipt foreldravaldi yfir börnum sínum með vísan til 13. gr. barnaverndarlaga. Málskotsheimildar var aldrei getið i úrskurði eða úrskurðarorðum. Einum úrskurði fylgdi afrit bréfs til málsaðila, og var þar getið málskotsheimildar. í öðru máli var bókað í fundargerð, að foreldrarnir hefðu, eftir að úrskurður var kveðinn upp, haft samband við forstöðumann fjölskyldudeildar félagsmálastofnunar og hefði hann bent þeim á, að þau gætu skotið úrskurðinum til barnaverndarráðs. I Kópavogi var einn úrskurður kveðinn upp á athugunartímabilinu, og var hann um töku barns af heimili. Var sá úrskurður ritaður í trúnaðarbók og vel rökstuddur. Ekki var getið málskotsheimildar í úrskurðarorðum. 3.3 Verkefni bamaverndaryfirvalda. A. Bamaverndarnefndir. Athugunin sýndi, að málum, sem til meðferðar koma, má skipta í tvennt: Annars vegar eru nefnd- unum send mál til umsagnar og á hinn bóginn eru eiginleg barnaverndarmál, þar sem nefnd að eigin frumkvæði eða eftir ábendingum annarra tekur mál barna til meðferðar. Lög um stofnun og slit hjúskapar frá 1972 (nr. 60, sbr. 47. gr. 1. og 2. mgr.) fela barnaverndarnefndum umsögn í forræðis- og umgengnisdeilum foreldra við skilnað. Þá skal og senda til umsagnar nefndanna umsóknir um ættleiðingu (sbr. 33. gr. barnavernd- arlaga og 8. gr. 1. 15/1978 um ættleiðingu). Virðast þessi mál taka mikinn tíma nefndanna. Verði barnaverndarnefnd þess vör, að foreldrar vanræki skyldur sínar gagnvart börnum og misbeiti foreldravaldi eða ef hegðun barns utan heimilis er ábótavant, getur hún gripið til viðeigandi ráðstaf- ana. Úrræðum þeim, sem nefnd ræður yfir, má skipta i tvennt. Annars vegar eru úrræði, sem snúa að heimilinu sjálfu, þ. e. að gefa barninu eða for- eldrum þess áminningu eða skipa eftirlitsmann. Hins vegar er það úrræði að taka barn af heimili og jafnvel svipta foreldra þess foreldravaldi. Þegar börn eru tekin af heimili sínu fyrir tilstilli barnaverndarnefndar, er þeim venjulega komið í vistun, en með vistun er átt við skammtímadvöl á opinberum stofnunum eða heimili. Líta má svo á, að t vistun felist aðvörun til foreldra þess efnis, að bæti þau ekki ráð sitt, verði barninu komið í fóstur og þau svipt forræði, náist ekki samvinna við þau um ráð- stafanir til úrbóta. I sumum þeirra vistunarmála, sem barnavernd- arnefnd Reykjavíkur hafði til meðferðar, var lang- lundargeð nefndarinnar með ólíkindum. Foreldr- unum voru hvað eftir annað gefin ný tækifæri, og börnin voru þvi ýmist í vistun eða heima, þar til þolinmæði nefndarinnar þraut að lokum og upp var kveðinn úrskurður um forræðissviptingu. I úrskurð- um þessum kom oft fram, og var í því sambandi vitnað til skýrslna sálfræðinga, að börn þessi væru orðin talsvert sködduð af umhverfi sinu og vafa- samt, hvort þau byðu þess nokkurn tíma bætur. Við lestur þessara úrskurða vaknaði því oft sú spurning, hvert leiðarljós nefndarinnar hafi verið við máls- meðferðina. Virðist oft sem önnur atriði en velferð barnanna hafi vegið þyngra á metunum. B. Barnaverndarráð. Af þeim málum, sem áfrýjað er til barnaverndar- ráðs, ber hæst umsagnir i forræðismálum og for- ræðissviptingar. Ráðið fær einnig talsvert af fóstur- málum og umgengnisdeilum til meðferðar. 4.0 Niðurstöður athugunarinnar og tillögur til úrbóta Eins og nú hefur verið rakið, leiddi athugunin í ljós, að ýmislegt mætti betur fara í störfum og starfsháttum barnaverndaryfirvalda. 4.1 Skráning fundargerða. Athugunin sýnir, að skráningu fundargerða er að verulegu leyti ábótavant. í 9. gr. barnaverndarlaga er mælt svo fyrir, að ritari barnaverndarnefndar skuli halda nákvæma fundarbók. Engin vísbending er gefin um, hvað í ákvæðinu felst. I ákvæðum rgj. SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.