Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Blaðsíða 62
HELGI JÓNASSON, fræðslustjóri Reykjanesumdæmis:
HLUTVERK SKÓLA í BARNAVERND
Samkvæmt lögum nr. 53/1966, um vernd barna
og ungmenna, hafa barnaverndaraðilar samvinnu
við forráðamenn skóla og aðra þá, sem fjalla um
málefni barna og ungmenna. Samkvæmt lögunum
er opinberum starfsmönnum, sem verða í starfa sín-
um varir við misfellur í uppeldi og aðbúð barna,
skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart. f þessum
hópi eru kennarar og aðrir starfsmenn skóla og
fræðsluskrifstofa, svo sem sálfræðingar, félagsráð-
gjafar og sérkennarar. Ef barnaverndarnefnd verður
þess vís, að hegðun barns sé ábótavant, svo sem
vegna ódælsku og óknytta, útivista á óleyfilegum
tíma, slæpingsháttar, flækings, betls, vanrækslu í
námi, drykkjuskapar eða annarrar óreglu, lauslætis
eða lögbrota, skal barnaverndarnefnd hefjast handa
um viðeigandi aðgerðir — m. a. þær, að ráðgast við
kennara, ef barn er í skóla eða við nám.
Af framansögðu sést, að löggjafinn ætlast til ná-
innar samvinnu barnaverndaraðila og skóla, enda
eðlilegt, þar sem um er að ræða opinbera aðila, sem
vinna að velferðarmálum barna og ungmenna.
Ákvæði grunnskólalaga
um barnavernd
Lögin um vernd barna og ungmenna voru sett
árið 1966, en lögin um grunnskóla voru sett árið
1974, eða 8 árum seinna. f grunnskólalögum er ekki
að finna bein ákvæði um samskipti við barnavernd-
araðila nema varðandi skólasókn í 6. grein, en þar
segir:
„ Verdi verulegur misbrestur á skólasókn skólaskylds bams
án þess að veikindi eða aðrar gildar ástœður hamli og
skólastjóri fœr ekki við ráðið, skal hann tilkynna fræðslu-
stjóra um málið. Vilji forráðamaður bamsins ekki hlíta
ákvörðun frœðslustjóra, getur hvor aðili um sig vísað
málinu til barnavemdarnefndar. “
Og í 53 grein, en þar segir:
„Eigi má nemandi í starfstíma skólans stunda vinnu
utan skólans, er að dómi skólastjóra og skólalœknis veldur
því, að hann getur ekki rœkt nám sitt sem skyldi eða notið
nauðsynlegrar hvíldar. Skal skólastjóri í þeim lilvikum
tilkynna það forráðamanni nemandans og hlutaðeigandi
vinnuveitanda, en verði ekki bót á ráðin, skal vísa málinu
til meðferðar barnaverndarnefndar. “
Hér er um bein fyrirmæli að ræða, sem ekki verður
undan skotizt, ef fara á að lögum, því skylt er að vísa
slíkum málum til barnaverndarnefndar.
Reglugerðarákvæði um
hegðunarvandamál nemenda
I reglugerð nr. 512/1975, um skólareglur o. fl. í
grunnskóla, þar sem fjallað er um vandamál, sem
skapast vegna slæmrar hegðunar ncmands, segir:
„Nú veldur nemandi vandkvœðum í skóla með hegðun
sinni, ber þá umsjónarkennara að leita orsaka og reyna að
ráða ból á, m. a. með viðtölum við nemandann og for-
ráðamenn hans. Ef viðleitni kennara ber ekki árangur,
skal hann vísa málinu til skólastjóra, sem kannar það frá
öllum hliðum. Geti skóli og heimili ekki í sameiningu
leyst vandann, vísar skólastjóri málinu tilfrœðslustjóra til
sérfrœðilegrar meðferðar. Forráðamönnum nemandans
skal tilkynnt sú ákvörðun án tafar, hafi hún ekki verið
tekin í samráði við þá.
Meðan málið er óútkljáð, getur skólastjóri vísað nem-
andanum úr skóla um stundarsakir, enda hafi hann til-
kynnt forráðamönnum nemandans og fræðslustjóra þá
ákvörðun. “
sveitarstjörnarmAl