Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Page 64

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Page 64
Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta I Reykjanesumdæmi höfðu sveitarfélögin sam- eiginlega komið á fót vísi að sálfræðiþjónustu, sem síðan var sameinuð fræðsluskrifstofunni, þegar hún tók til starfa. Á Norðurlandi öllu hefur starfað ráð- gjafar- og sálfræðiþjónusta sameiginlega fyrir bæði fræðsluumdæmin, en hefur nýlega verið skipt; á Vestfjörðum hefur verið ráðinn sálfræðingur, og í öðrum fræðsluumdæmum hafa fræðsluskrifstofur reynt að sinna ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu með íhlaupamenn í vinnu, sem eru í starfi annars staðar. Þótt þessi þjónusta sé hafin víða um land, er hún enn víðast mjög ófullkomin, nema í Reykjavík, og þótt enn sé víðast langt í land, að fræðsluskrifstofur fái þann mannafla, sem þarf til að annast þá þjón- ustu, sem þeim er ætlað samkvæmt grunnskólalög- um, er samt augljóst, að sú þjónusta, sem þegar er komin á, hefur gert mjög mikið gagn — og þá ekki sízt á sviði barnaverndarmála, með athugunum, einstaklingsviðtölum, leiðbeiningum og jafnvel meðferð i einstaka tilvikum — svo og með útvegun sérkennslu og leiðbeiningum við hana. I grunnskólalögum er ákvæði um hlutverk ráð- gjafar- og sálfræðiþjónustu skilgreint sem hér segir: „Hlutverk ráðgjafar- og sálfrœðiþjónustu er: a) að nýta sálfrœðilega og uppeldisfrœðilega pekkingu í skólastarfi; b) að vera ráðgefandi um umbœlur í skólastarfi, sem verða mœtlu til að fyrirbyggja geðræn vandkvœði; c) að annast rannsókn á afbrigðilegum nemendum og peim, sem ekki nýtast hœfileikar í námi og starfi; d) að leiðbeina skólastjórum, kennurum og foreldrum um kennslu, uppeldi og meðferð nemenda, sem rannsakaðir eru(sbr. c-lið); e) að taka til meðferðar nemendur, sem sýna merki geðrœnna erfiðleika, og leiðbeina foreldrum og kennurum um meðferð peirra; f) að annast hœfniprófanir og ráðgjöf í sambandi við náms- og starfsval unglinga; g) að annast ýmis rannsóknarstörf og athuganir í sam- bandi við ráðgjafarpjónustuna. “ Lögin gera ráð fyrir, að á fræðsluskrifstofu starfi saman að ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu sálfræð- ingar, félagsráðgjafar og sérkennarar. Mjög mikilvægt er, að allir þessir þættir vinni saman að lausn mála — sérstaklega ef um er að ræða mál, sem stafa af sérstökum vandkvæðum einstakra nemenda. Þessir starfsmenn eru ráðgjafar fræðslu- stjóra í þeim málum, þar sem hann á að fella úrskurð í málum einstakra nemenda. Ráðgjafar- og sálfræðiþjónustan er ráðgjafar- og tilvísunaraðili og í einstaka tilvikum meðferðaraðili. Þjónustan bendir á úrræði og leitar þeirra, en möguleikar á úrræðum eru misjafnir eftir staðhátt- um og aðstæðum. I sumum tilvikum getur fræðslustjóri leyst mál í samræmi við tillögur ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu með útvegun sérkennslu, þar sem starfandi eru sér- kennarar á vegurn fræðsluskrifstofu, en t. d. í Reykjanesumdæmi eru starfandi allmargir sérkenn- arar, sem ráðnir eru að grunnskólum umdæmisins í heild sinni, en starfa að mestu leyti við einn eða fleiri skóla og taka nemendur annars staðar að eftir atvikum eða fara milli skóla. Þá er og starfandi á vegum Reykjanesumdæmis meðferðarheimili fyrir atferlistruflaða nemendur, sem rekið er í samvinnu við Kópavogskaupstað. I öðrum tilvikum hafa úrræði verið fundin í sam- vinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd eða fé- lagsmálaráð. Þar, sem ég starfa, vinna starfsmenn ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu sameiginlega að lausn einstakra vandamála í samvinnu við skóla og í sumum tilvik- um barnaverndarnefnda eða félagsmálaráðs. Hvernig unnið er að einstökum málum hjá fræðslu- skrifstofunni, fer nokkuð eftir því, hvernig málið ber að. Ef mál kemur frá skóla, er unnið með skólanum og heimilinu, ef mál kemur frá barnaverndarnefnd, s. s. afbrotamál og lögreglumál, eða félagsmálaráði, bætist sá aðili í hópinn. Skólinn verndaður vinnustaöur I skólunum sjálfum fer að sjálfsögðu fram stöðugt barnaverndarstarf. Öll störf grunnskóla með nem- endum eiga að vera barnaverndarstörf. Skólinn á að vera verndaður vinnustaður þeirra borgara samfé- lagsins, sem eiga að erfa landið. Þar á þeim að líða vel, og þar eiga þeir að eflast að vizku og þroska. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.