Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 10
FRÉTTIR FRÁ SVEITARSTJÓRNUM
Markús Örn Antonsson, borgarstjóri:
Draumsýn orðin að veruleika
✓
Avarp við vígslu ráðhússins
Markús Örn Antonsson, borgarstjóri, flytur ávarp sitt. Ljósmyndastofa Reykjavíkur tók myndina.
Virðulegi forseti íslands, biskup, forsætisráðherra,
forseti borgarstjórnar, aðrir góðir hátíðargestir,
Loks er sú stund upp runnin, að borgarstjórn Reykja-
víkur eignast verðugt og veglegt aðsetur. Ráðamenn
borgar ásamt áhugasömum borgarbúum hafa unnið að
málinu með góðum ásetningi, fyrirheitum og virðing-
arverðri viðleitni, sem staðið hefur í tæp tvö hundruð
ár.
Yfirstjórn Reykjavíkurborgar og borgarskrifstofur
eru fluttar í eigin híbýli úr húsnæði, sem tekið var á
leigu árið 1929. Það var algjört skammtímaúrræði, því
að áform voru þá uppi um að hefja byggingu ráðhúss ári
síðar. Þess vegna voru borgarskrifstofur til húsa í
Austurstræti 16 - til bráðabirgða - í rúm 60 ár.
Yfirvöld í Reykjavík og bæjarbúar hafa lengi alið
með sér vonir og drauma um að eignast ráðhús í líkingu
við þau höfuðsetur, sem Reykvíkingar og aðrir lands-
menn hafa séð og skoðað á ferðum sínum um fjarlæg
lönd, hin glæstu ytri tákn og minnisvarða sérhverrar
myndugrar borgar. Það var mikilsverður þáttur í sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar og vexti þess bæjar, sem hún
kaus að gera að höfuðborg sinni, að framsýnir forystu-
menn hugsuðu stórt og sáu fyrir sér nýjar byggingar og
stofnanir sem nauðsynlegan hluta af ímynd frelsis,
sjálfstæðis og sjálfsvirðingar framsækinnar þjóðar.
Tómas Sæmundsson átti sér glæsta framtíðarsýn af
höfuðstað landsins og lýsti henni m.a. með svofelldum
orðum í Fjölni fyrir 150 árum:
136