Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 18
SKIPULAGS- OG BYGGINGARMAL
Aðalskipulag 1990-2010. Landnotkunarkort.
bakhlið, og er það hin staðfesta skipulagsáætlun.
Þetta eru nýmæli í framsetningu staðfests aðal-
skipulags hér á landi.
A bakhlið landnotkunarkortsins eru prentuð fjög-
ur mikilvæg þemakort. Þau eru:
1) Helztu byggingarsvæði
2) Helztu umbætur á aðalgatnakerfi
3) Fráveitukerfi og gámastæði
4) Flokkun opinna svæða
í hinni staðfestu greinargerð, sem aðeins er um
átta blaðsíður að lengd, er aðaláherzlan lögð á
stefnumörkun varðandi byggðarþróun, aðalgatna-
kerfi og landnotkun. Með því að leggja aðaláherzlu
á stefnumörkun og framtíðarsýn er hægt að tak-
marka umfjöllun um ýmsa þætti, sem ekki þarf að
staðfesta, eins og þróun byggðar í borginni seinustu
árin, náttúrufarsþætti, sem breytast lítið á stuttum
tíma, og ýmsa félagsþætti, svo dæmi séu tekin.
Einnig tókst að stytta greinargerð aðalskipulags-
ins með því að draga talnagrunn og helztu áætlanir
saman í eitt hefti, sem unnið var snemma í skipu-
lagsvinnunni og er fylgiskjal með aðalskipulaginu.
Aðeins helztu niðurstöður úr því hefti eru felldar inn
í greinargerð aðalskipulagsins.
Auk hins staðfesta aðalskipulags er gefíð út 50
blaðsíðna litprentað upplýsingarit með ítarlegri
texta og fleiri skýringarmyndum en í staðfesta
skipulaginu. Upplýsingaritið er ekki staðfest. I ritinu
er m.a. tölvuunnið kort, sem sýnir skipulagsáætlanir
sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, kort, sem
sýnir stöðu deiliskipulags á nýbyggingarsvæðum
borgarinnar norðan Grafarvogs, og kort, sem sýnir
frumdrög að stígakerfi og útivistarmöguleikum á
Hengilssvæðinu, svo dæmi séu tekin. Þá mun fylgja
aðalskipulaginu sérstakt útivistar- og stígakort, sem
gefíð verður út í sumar eða haust.
Samandregin eru helztu nýmæli og nýjar áherzlur
við gerð Aðalskipulags Reykjavíkur 1990-2010
þessi:
• Kynning á aðalskipulaginu í upphafi skipulags-
vinnu.
• Staðfest aðalskipulag á einu korti - landnotkun
á framhlið og greinargerð á bakhlið.
• Endurskoðun aðalskipulags í upphafi hvers
kjörtímabils.
144