Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Síða 50
STAÐLAR
- Ný drög aö skjali frá IGRA
(1989). „International model form
of agreement between client and
consultant and International
general rules of agreement bet-
ween client and consultant''.
- Grein, sem var kynnt á ráö-
stefnu FIDIC (International Feder-
ation of Consulting Engineers á
ensku og Fédération Internationale
des Ingenieurs Conceils á frönsku)
hinn 26. september 1989. „New
FIDIC international general rules of
agreement for consulting ser-
vices“, eftir Mario Asin og Godfrey
Ackers.
- Drög að dönskum bæklingi
ABR 89. „Almindelige bestemmel-
ser for teknisk rádgivning og bi-
stand“.
- Sænska skjaliö ABK 87. „Al-
manna bestámmelser for konsult-
uppdrag inom arkitekt- och
ingenjörsverksamhet av ár 1987".
Viö samningu frumvarpsins var
einkum höfð hliðsjón af íslenzku,
dönsku og sænsku skilmálunum
auk norska staöalsins.
Frumvarp aö ÍST 35
Frumvarp var sent til almennrar
gagnrýni með lokafresti hinn 20.
júní 1991. Á gagnrýnistímanum var
haldinn sérstakur kynningarfundur
22. maí 1991 til þess að kynna
frumvarpið, og var sá fundur vel
sóttur og umræður miklar. Um-
sagnarfrestur til að skila gagnrýni
var síðan framlengdur til 31. júlf
1991 vegna framkominna óska.
Athugasemdir við frumvarpið
bárust frá sjö aðilum. Þessar at-
hugasemdir voru teknar til skoð-
unar, þeim svarað og frumvarpið
lagfært. Fundað var með fimm
þeirra aðila, sem gagnrýndu frum-
varpið, þar sem gerð var grein fyrir
lagfæringum á frumvarpinu. Sam-
band var haft við hina tvo í síma.
Lagfæringarnar á frumvarpinu
voru mest orðalagsbreytingar og
breytingar, sem gera ákvæði stað-
alsins skýrari og ákveðnari.
Kaflaskipting staöalsins
Staðallinn skiptist í níu kafla auk
viðauka. Kaflaheiti eru:
- Umfang og gildissvið
- Ráðgjöf
- Skyldur verkkaupa og ráð-
gjafa
- Skilafrestur
- Flöfundar- og eignarréttur
- Þóknun
- Ábyrgð
- Riftun
- Ágreiningur
Staðlinum fylgir samningseyðu-
blaö, sem er ekki eiginlegur hluti
staðalsins. Eyðublaöiö er einnig
fáanlegt sérprentað.
Samningar aðila
í grein 2.1.1 í staðlinum eru til-
tekin fjölmörg atriði og möguleikar,
sem þarf að skilgreina og velja um
í samningi ráðgjafa og verkkaupa.
Þessi atriöi eru:
- Eðli verkefnis
- Tæknilegar og fjárhagslegar
forsendur
- Þóknun til ráðgjafa
- Áætlaður heildarkostnaður
vegna ráögjafar
- Stjórnskipulag
- Fundasetur
- Samráö við verkkaupa
- Skil á úrlausn verkefnis
- Verkþættir og skil þeirra
- Skiladagur
Ábyrgð ráögjafa
í staðlinum er sett fram það ný-
mæli hérlendis varðandi ábyrgð
ráðgjafa, að skilgreind er almenn
viðmiðun um hámark og lágmark
bótagreiðslna, ef ekki er kveðið á
um annað f samningi milli aðila.
Húsbyggjendur, athugið!
Útvegum hvert á land sem er tilsniðin timburhús í
pökkum með ýmsum gerðum útveggjaklæðningar.
Hverjum húspakka fylgja allar teikningar og verklýs-
ingar ásamt leiðsögn um byggingu hússins.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Faghúss hf. á Grensásvegi 16, Reykjavík.
í ? i T FAGHI IS hf
SKRIFSTOFA: GRENSASVEGI 16 - 108 REYKJAVIK - S 91-6788/5
176