Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Page 15
AFMÆLI
upp skólahúsi sem hefði heimavist fyrir böm-
in, sérstaklega fyrir þau sem langt áttu að
sækja í skólann, og þörfinni fyrir samkomu-
hús.
Miklar umræður urðu um málið og töldu
margir „núverandi fyrirkomulag óviðunandi"
- og sumir vildu byrja á byggingunni „í vor“.
Samþykkt var í einu hljóði:
„Fundurinn álítur að brýn nauðsyn sé til
þess að byggt verði skólahús hér í hreppi og
að mál það verði tekið til rannsóknar sem
fyrst.“
Þá var kosin þriggja manna nefnd, skrif-
lega, til „þess undirbúnings er leggi svo mál-
ið fyrir almennan hreppsfund svo fljótt sem
unnt er.“
I nefndina voru kosnir Eiríkur Jónsson,
Vorsabæ, Guðni Eiríksson, Votamýri, Jón
Jónsson, Hlemmiskeiði.
Nefndin brá skjótt við og hélt þrjá fundi í
sama mánuði. Á fyrsta fundinum á Hlemmi-
skeiði skipti nefndin með sér verkum þannig
að Jón var kosinn formaður og Eiríkur ritari.
Annan fund sinn hélt nefndin með bændunum á
Húsatóftum til að „leita eftir stað til að byggja húsið á
og ennfremur að semja um það.“ Fram kemur að heitt
vatn var ekki talið nóg þar heima fyrir húsið en leyft að
byggja það „austur á Holtinu". Lofuðu bændumir að
gefa ákveðin svör um land þar og verð þess fyrir lok
marsmánaðar.
Á þriðja og síðasta bókaða fundi nefndarinnar kom
tilboð frá Hlemmiskeiðisbændum „um að láta land und-
ir húsið á sem hentugustum stað, án þess að taka neitt
fyrir það.“
Á þeim fundi var gengið frá bréfi til fræðslumála-
stjóra þar sem vitnað er til samþykktar
hreppsfundarins 12. janúar - og að land sé fá-
anlegt undir húsið - og sótt um styrk úr ríkis-
sjóði sem venja er til, eða hálfur kostnaður.
Bréfinu fylgdu „ómerkilegar frumteikn-
ingar“ og er lögð áhersla á að málinu verði
hraðað.
Þar með var málið komið til fræðsluyfir-
valda og hefur fengið þar sinn undirbúning,
samanber að teikningar eru tilbúnar vorið
1933 og lofað hefur verið ríkisstyrk.
Það var svo á almennum hreppsfundi 15.
apríl 1933 að samþykkt var „að ráðast í að
byggja skólahús með heimavist og leikfimi-
hús í vor“, eins og stendur í fundargerð frá
þeim tíma. Jafnframt var samþykkt að hver
búandi legði fram 10 dagsverk án endurgjalds
og söfnuðust 190 dagsverk á fundinum.
Kosin var 7 manna framkvæmdanefnd,
tveir frá hreppsnefnd, tveir frá skólanefnd og
Frá afmælishófi f tilefni af 60 ára afmæli Brautarholtsskóla. Viö skólann hafa
veriö sex skólastjórar. Hópur frá tíö allra skólastjóranna kom fram og söng
lag. Fyrstir komu nemendur Þorsteins Hjartarsonar skólastjóra, 7 ára börn, en
Erna Ingvarsdóttir kennari spilar undir á gítar.
einn að auki. Ennfremur tveir menn frá ungmennafélag-
inu.
Kosningu hlutu Eiríkur Jónsson, Vorsabæ, Bjami Þor-
steinsson, Hlemmiskeiði, Guðni Eiríksson, Votamýri,
Vigfús Þorsteinsson, Húsatóftum, Þorgeir Þorsteinsson,
Hlemmiskeiði, Jón Bjamason, Hlemmiskeiði, og Jón
Guðmundsson, Blesastöðum.
Á þessum tíma nutu heimavistarskólar með leikfimi-
sal, sem notaður var til samkomuhalds - eða sambyggð
skóla- og samkomuhús - velvilja fræðsluyfirvalda og
voru viðurkennd sem skólamannvirki í heild sem styrk-
hæf úr ríkissjóði er nam helmingi byggingarkostnaðar.
Hópur Stefáns Hallssonar, fv. skólastjóra.
77