Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Síða 29
UMHVERFISMAL
Magn á íbúa fjöldi íbúa* magn i kg kg á ibúa kr./kg
Breiðholt 13.677 88.143 6,44 5,95
Árbær og Selás 6.878 38.480 5,59 3,12
Vesturbær og Seltjarnarnes 20.699 84.885 4,10 2,50
Grafarvogur 11.498 30.660 2,67 4,45
* Ibúafjöldi 1. des. 1995.
í Breiöholtshverfi eru 23 söfnunarstaöir, 23 litlir gámar.
i Árbæjar- og Seláshverfi eru tveir stórir gámar
I vesturbænum og á Seltjarnarnesi eru þrír stórir gámar í Grafarvogi eru þrir söfnunarstaöir, einn stór gámur og fjórir litlir gámar.
eða gert tilraun til íkveikju í 20 skipti. Þar virðist þó vera
um nokkur einangruð tilvik að ræða því ítrekað hafa
sömu staðimir orðið fyrir aðkasti. Það virðist sem þessi
faraldur liggi niðri um þessar mundir því ekki hefur ver-
ið kveikt í gámi í fjóra mánuði.
Árangur
Viðtökur almennings hafa frá upphafi verið með ágæt-
um og þátttaka verið vaxandi. Magnið sem safnast hefur
á fyrstu sex mánuðunum er um 520 tonn. Eins og fram
kom hér að framan var borginni skipt í tvö tilraunasvæði
og er greinilegur munur milli þeirra á því magni sem
safnast hefur og gefur svæðið með aukinn þéttleika
meira magn af sér. í Breiðholtshverfum hafa þannig
safnast um 6,44 kg á íbúa en hins vegar 4,77 kg á fbúa
að jafnaði í öðrum borgarhlutum og er munurinn um
35%. Kostnaður á hvert kg í Breiðholti er einnig hærri
eða 59% en er að jafnaði annars staðar í borginni. Ef
niðurstaða söfnunarinnar í Breiðholti er borin saman við
árangur í nokkuð afmörkuðum borgarhlutum og svæð-
um á höfuðborgarsvæðinu sést það á töflunni hér fyrir
ofan.
Arangur söfnunarinnar ntá einnig sjá með því að
skoða breytingar á magni húsasorps á tilraunatímanum.
A tímabilinu frá desember 1994 til júní 1995 jókst magn
húsasorps frá sama tíma, 1993-1994, um 328 tonn en
hins vegar á tímabilinu frá júlí 1995 til desember 1995
minnkar magnið um 364 tonn frá sama tíma 1994. Sam-
kvæmt þessu hefur söfnunarátakið dregið verulega úr
því magni sem skilað hefði verið til urðunar og aukið
við endurnýtingarhlutfall Sorpu bs. Arangur má þannig
mæla sem spamað í útgjöldum. Kostnaður við söfnunina
hefur verið um 2.140 þús. kr. en ábati um 2.815 þús. kr.
sem að mestu felst í lægri móttökugjöldum Sorpu bs.
fyrir pappír en húsasorp.
Til Sorpu bs. bárust fyrir söfnunarátakið 1220 tonn af
pappfr á ári sem jafngildir að mati ráðamanna Sorpu um
20% söfnunargráðu. Á síðustu sex mánuðunum náðist
hins vegar magn sem jafngildir um 2680 t á ári eða 45%
söfnunargráðu. Af þessu sést að verulegur árangur hefur
náðst í að auka endurvinnslu og draga úr förgun.
Lokaorö
Þegar hafist var handa um verkefnið var rennt nokkuð
blint í sjóinn um það magn sem næðist að safna. Þannig
var ekki ljóst hver þátttaka yrði né hvert samspil staðar-
val gáma og magns væri. Það er ljóst að árangur fyrstu
sex mánaðanna sýnir að verkefnið var tilraunarinnar
virði og gerir okkur betur í stakk búin til að meta tillögur
um breytingar frá núverandi söfnunarkerfi sorphirðunn-
ar. Með verkefninu hefur komið í ljós að með því að
velja söfnunarílátunum heppilega staði og hafa þau af
réttri stærð megi með tiltölulega litlum tilkostnaði auka
verulega endurvinnslu sorps.
23