Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 51
FRAMLEIÐNISJÓÐUR LANDBÚNAÐARINS AUGLÝSIR:
Efling atvinnu í dreifbýli
Framleiðnisjóði landbúnaðarins er samkvæmt samningi ríkis og bænda frá 11. mars 1991 meðal
annars ætlað að ráðstafa fé til að efla atvinnustarfsemi í sveitum. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið eftir-
farandi meginreglur um stuðning við fjárfestingu í atvinnurekstri:
I. FRAMLÖG TIL FRAMKVÆMDA Á LÖGBÝLUM
1.
Atvinnurekstur sem stofnað er til á lögbýlum getur notið framlags.
Þeir bændur skulu að öðru jöfnu sitja fyrir um framlög sem hafa innan við 500 ærgilda greiðslumark
eða eru frumbýlingar.
Þá sitja þeir fyrir um framlög að öðru jöfnu sem hafa aflað sér starfsmenntunar í hinni fyrirhuguðu aÞ
vinnugrein.
- Við ákvörðun um stuðning er höfð hliðsjón af umfangi búrekstrar, fjarlægð frá þéttbýli og fjölda
vinnufærra manna sem eiga lögheimili á býlinu.
2.
Framlag getur numið 30% af framkvæmdakostnaði (án virðisaukaskatts), þó að hámarki
kr. 1.200.000 miðað við byggingarvísitölu 1 89,6 og breytist samkvæmt henni.
- Til greina kemur að veita viðbótarframlag (allt að 100%) ef framkvæmdin skapar fleiri en tvö ársverk.
- Akvörðun um upphæð framlags tekur mið af tekjum umsækjenda utan bús og umfangi þess reksturs
sem sótt er um stuðning til.
II. FRAMLÖG TIL AÐ STOFNA EÐA EFLA FÉLÖG UM
ATVINNUREKSTUR í DREIFBÝLI
Framleiðnisjóður mun leitast við að styðja bændur og samtök þeirra (búnaðarfélög, veiðifélög o.fl.) til
þátttöku i nýjum atvinnurekstri með fjárframlögum.
Við ákvörðun um stuðning þennan verður m.a. höfð hliðsjón af stöðu hefðbundinna búgreina á viðkom-
andi svæði og því hvort hinn nýi atvinnurekstur er líklegur til að auka atvinnu og efla byggð.
Þá verður tekið mið af og/eða krafist mótframlags þeirra aðila sem óska eftir stuðningi.
Styrkþegum er skylt að veita sjóðnum upplýsingar um framvindu verkefna og rekstur þeirra fyrirtækja
sem framlag er veitt til þegar stjórn sjóðsins óskar.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Laugavegi 120, 105 Reykjavík, sími 525 6400 og fax 525 6439
og hjá formanni stjórnar sjóðsins, sími/fax 452 4646.