Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 56

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 56
RÁÐSTEFNUR Frá fjármálaráöstefnunni í Súlnasal Hótel Sögu. Fjölmennasta fj ármálaráð s tefnan Ráðstefna sambandsins um fjármál sveitarfélaga sem haldin var í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík 23. og 24. nóvember sl. var fjölmennasta fjármálaráðstefna þess. Hana sóttu um 420 þátttakendur, fulltrúar sveitarfélaga, framsögumenn og gestir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður sambandsins, setti ráðstefnuna og bauð sérstaklega velkominn Pál Pét- ursson félagsmálaráðherra sem nú sat fyrstu fjármála- ráðstefnuna sem félagsmálaráðherra. Þá vék formaður að snjóflóðunum á Súðavík og Flat- eyri. Risu ráðstefnugestir síðan úr sætum til að minnast þeirra sem þar létu lífið. Sídustu ár erfió „Síðustu ár hafa að mörgu leyti verið sveitarfélögun- um í landinu erfið,“ sagði formaður er hann gerði grein fyrir fjárhag sveitarfélaganna. Astæður erfiðleikanna kvað hann m.a. aukið atvinnuleysi sem kallað hefði á aukin útgjöld til félagsmála og til vinnuskapandi að- gerða sem kostað hefðu sveitarfélögin útgjöld og veru- lega skuldasöfnun. Sérstaklega ræddi hann ábyrgðir sem fallið hefðu á sveitarsjóði vegna gjaldþrots fyrirtækja. Kvað hann ástæðu til að ræða það af fullri alvöru hvort rétt væri að afnema úr sveitarstjórnarlögum heimildar- ákvæði um einfalda ábyrgð sveitarsjóða í ljósi fenginnar reynslu. Yrði það ekki gert væri nauðsynlegt að sveitar- félögin í landinu mótuðu sér samræmda afstöðu og markvissar vinnureglur hvað varðaði ábyrgðir og þátt- töku í atvinnurekstri almennt, þannig að atvinnulífinu og lánastofnunum væri Ijóst hvar takmörk sveitarfélaganna lægju í þeim efnum. Þá vék formaður að tekjutapi sveitarfélaga vegna ein- hliða ákvörðunar ríkisstjómarinnar um að afnema skatt- greiðslur af lífeyrisútgjöldum launþega í áföngum og að útgjaldaauka sveitarfélaganna vegna hækkunar trygging- argjalds. Um þetta og ileiri þætti í fjárhagslegum sam- skiptum sveitarfélaganna og ríkisins hefði sambandið beðið um viðræður við ríkisstjórnina og hefði félags- málaráðherra sett á stofn vinnuhóp til þess að ræða þá. Ennfremur yrði í vinnuhópnum m.a. rætt um framtíð húsaleigubótakerfisins og þá kröfu sambandsins að fjár- hagsaðstoð sveitarfélaga yrði undanþegin staðgreiðslu. Þá vakti formaður athygli á því að ýmis sveitarfélög risu ekki undir þeim kvöðum sem félagslega húsnæðiskerfið legði þeim ú herðar vegna kaupskyldu þeirra. Vilhjálmur gerði í ræðu sinni grein fyrir undirbúningi að yllrfærslu grunnskólans og lagði þunga áherslu á að viðhlítandi samkomulag næðist sem leiddi til þess að 50 L

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.