Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 59

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 59
RAÐSTEFNUR Þéttbýliö kallar á þjónustu og mannvirki Kristófer Oliversson, ráðgjafi hjá Hagvangi hf., kynnti síðan niðurstöður úr könnun sem hann hafði gert fyrir sambandið á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna árin 1989-1994. Sýndi hann með súluritum þá breytingu sem orðið hefði á nokkrum útgjaldaflokkum og á nettóskuld- um. „Þau sveitarfélög sem eiga í mestum erfiðleikum eru þéttbýlissveitarfélögin þar sem þjónustan er mest,“ sagði Kristófer og kvað skýringuna felast í mikilli upp- byggingu mannvirkja og þjónustu undanfarin ár þar sem framkvæmt hefði verið hraðar en tekjur sveitarfélaganna leyfðu. Betri afkoma hins opinbera treystir best lífskjörin Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, ræddi helstu forsendur efnahagsáætlana sveitarfélaga fyrir árið 1996 og næstu árin þar á eftir, þjóðhagsleg áhrif stækkunar álversins í Straumsvík, sem þá hafði ný- lega verið ákveðin, og um hagstjórn almennt. Hann kvað afar mikilvægt að hið opinbera, ríkissjóður og sveitarfélög, bættu afkomu sína á næstu árum og stuðl- uðu með því að auknum þjóðhagslegum spamaði. „Að öllu athuguðu,“ sagði Þórður í lok erindisins, „verður grunnur hagvaxtar og batnandi lífskjara best treystur með betri afkomu hins opinbera." Félagslegar íbúöir auka á skuldirnar Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Höfðahrepps, flutti síðasta framsöguerindið á ráðstefnunni, um félagslega íbúðakerfið. Gerði hann að umtalsefni vanda þeirra sveitarfélaga sem orðið hefðu að leysa til sín fjölda fé- lagslegra íbúða vegna kaupskylduákvæðisins en hefðu hvorki getað leigt þær né selt. Hann kvað könnun sem sambandið hefði látið gera sýna að skuldir sveitarfélaga myndu vegna innlausnar slíkra íbúða aukast um hátt í milljarð króna á árinu. Félagslegar íbúðir eru um 10,4% allra íbúða á landinu, en til þeirra teljast félagslegar eignaríbúðir, kaupleiguíbúðir, leiguíbúðir og almennar kaupleiguíbúðir. Magnús B. Jónsson á sæti í stjómskip- aðri nefnd sem kannar leiðir til að ráða fram úr þeim vanda sem mörgum sveitarfélögum hefur að höndum borið vegna kaupskyldunnar á slfkum íbúðum. Lýsti hann leiðum sem ræddar væru í nefndinni í þeim efnum. 6 metra stöng með gylltum húni ogflagglínu. Fótur úr stáli fyrir 6 metra fanastöng Vandaðar, glær-eða hvítlakkaðar. Sérsmíðum einnig stengur upp í allt að 12 metra lengd. Tökum að okkur ýmiss konar trésmíöi, t.d. á gluggum, hurðum, ásamt ýmiss konar skrautlistum o.fl. Eigum á Iager fjölmargar gerðir af unnum trélistum og gerettum, einnig lista sem falla mjög vel að breytingum í eldri húsum. • Handriðalistar • Gólflistar • Loftbitar • Þakkantar • Geretti •Kverklistar •Rammalistar • Glerfalslistar • Skrautlistar • o.fl, Q TREIÐN AÐARDEILD Mýrargötu 8-10 (við Slippinn) - Símar: 552-8811 og 552-4400 5 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.