Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Qupperneq 8
AFMÆLI
Kór frá Runavik, vinabæ Egils-
staöa í Færeyjum, söng á há-
tiðarsamkomunni.
elliheimilið, Minjasafn Austurlands og nú síðast var
stofnuð ein bamaverndarnefnd fyrir allt svæðið. Þá er
hafin gerð svæðisskipulags í samvinnu við Skipulag rík-
isins. Þá hafa þessi sveitarfélög ásamt Seyðisfjarðar-
kaupstað hafið samstarf við Byggðastofnun um svæðis-
bundna byggðaáætlun. Sveitarfélög á Fljótsdalshéraði
reka svo sameiginlegar brunavarnir. I samstarfi við
sveitarfélög á Héraðssvæði, Reyðarfirði, Eskifirði, Nes-
kaupstað og Mjóafirði er rekið heilbrigðiseftirlit með
aðsetur á Reyðarfirði. Að Skólakrifstofu Austurlands og
Héraðsskjalasafni Austfirðinga standa öll sveitarfélög í
Múlasýslum. Egilsstaðabær og Fellahreppur hafa átt
gott samstarf um ýmis sameiginleg mál, s.s. rekstur hita-
veitu, íþróttamiðstöðvar og nú síðast rekstur skíðasvæða
í Fjarðarheiði ásamt Seyðfirðingum. Sorpsamlag Mið-
héraðs er í eigu Egilsstaðabæjar, Fellahrepps og Valla-
hrepps. Um þessar mundir stendur fyrir dyrum fjölgun
sveitarfélaga í samlaginu.
Hinn 6. september verða greidd atkvæði um samein-
ingu Egilsstaðabæjar, Eiðahrepps, Hjaltastaðarhrepps,
Skriðdalshrepps og Vallahrepps. Samstarfsnefnd um
sameiningu þessara sveitarfélaga hefur verið að störfum
í eitt og hálft ár og hefur verið góð samstaða innan
nefndarinnar.
íþróttir
Öflugt íþróttastarf er ein forsenda þess að fólk vilji
setjast að í sveitarfélaginu. Iþróttafélag bæjarins hefur
um langt árabil haldið uppi miklu og góðu starfi. Félag-
ið hefur lagt áherslu á að hafa fjölbreytta starfsemi fyrir
yngri kynslóðina og sl. haust hóf íþróttaskóli í samstarfi
við ungmennafélagið Huginn í Fellahreppi starfsemi
sína og hefur hann gefið góða raun. íþróttaaðstaðan er
góð. Hér er íþróttahús sem nú er verið að stækka, ný
sundlaug sem sagt var frá í 3. tbl. Sveitarstjómarmála í
ár, knattspyrnuvöllur með frjálsíþróttaaðstöðu, æfinga-
vellir og skíðalyfta í Fjarðarheiði. Árið 2001 verður
landsmót UMFÍ haldið á Egilsstöðum.
Skrifaö undir samning um kaup bæjarins á landinu 28. júni,
Helgi Halldórsson bæjarstjóri, til vinstri, og Guömundur Bjarna-
son landbúnaöarráöherra.
1 98