Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Síða 8
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Úr Fiskiöjunni á Sauðárkróki. Ljósm. Ljósmyndastofa Péturs.
Ferðaþjónusta fer vaxandi í Skagafirði. Drangeyjarsafniö á
Hofsósi, gamla pakkhúsið. Ljósm. Valgeir Bjarnason.
greiðslu með því lokamarkmiði að ganga til atkvæða um
sameiningu þann 7. júní 1997. Niðurstaðan varð þó sú
að fara hægar í sakimar og stefna að atkvæðagreiðslunni
í nóvember 1997 ef um það næðist samstaða. Haldnir
voru þrír kynningarfundir í héraðinu um sameiningar-
mál í mars 1997.
Störf sameiningarnefndar
í sameiningamefnd sátu þrír fulltrúar Sauðárkróks-
kaupstaðar og tveir fulltrúar frá hverju hinna 10 sveitar-
félaga sem að viðræðunum stóðu. Auk þessa var skipuð
minni vinnunefnd, stjómskipunamefnd, sem vann milli
funda sameiningamefndar. Formaður nefndarinnar var
kjörinn Bjarni Egilsson, oddviti Skefilsstaðahrepps.
Hver og ein sveitarstjóm útbjó óskalista yfir þau mál
sem þyrfti að taka fyrir í sameiningamefnd. Þessi mál
voru síðan tekin til umræðu í nefndinni. Það var ljóst að
þótt viðræðumar væru nauðsynlegur undanfari samein-
ingar þá gengju fulltrúar sveitarfélaganna óskuldbundnir
til þeirra, enda lágu ekki fyrir viljayfirlýsingar einstakra
Kvótahlutdeild Skagfiröinga hefur aukist á undanförnum árum
og er sjávarútvegur því aftur í sókn.
Landbúnaður er mikilvægur atvinnuvegur í Skagafirði, þar á
meöal hrossarækt. Ljósm. Ljósmyndastofa Péturs.
sveitarstjóma né fulltrúa þeirra um sameiningu.
Sameiningamefnd markaði sér fljótlega þá stefnu að
vinna að gerð samfélagssáttmála þar sem haft væri að
augnamiði að skapa umgjörð að nýju sameinuðu sveitar-
félagi. í hönd fór samningaferli þar sem fulltrúar sveitar-
félaganna einsettu sér að ná sameiginlegri niðurstöðu í
öllum málaflokkum. Það var álit nefndarinnar að til þess
að sáttmálinn hefði meira gildi og endurspeglaði sem
best tilfinningar og vilja íbúanna yrði að vinna hlutina
„innan frá“ og því væri nauðsynlegt að heimamenn ynnu
sjálfir undirbúningsvinnuna. Því var þeirri leið hafnað að
fá utanaðkomandi ráðgjafarfyrirtæki til þess að vinna að
tillögugerð eða til hvers konar fjárhagslegrar áætlana-
gerðar fyrir sameinað sveitarfélag, enda slíkt einungis í
valdi sveitarstjómar í sameinuðu sveitarfélagi. Samein-
ingamefnd fékk Endurskoðun hf. á Sauðárkróki til að
gera samræmda úttekt á fjárhagslegri stöðu sveitarfélag-
anna og þáverandi verkefnastöðu þeirra. Jafnframt réð
nefndin sér starfsmann til þess að halda utan um undir-
búningsvinnuna og varð hann einnig tengiliður við íbú-