Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Side 31
BYGGÐAMAL
Áætlaö er aö störfum i byggingariönaöi tjölgi í nánustu framtíö. Hér eru vaskir Skag-
firöingar viö framkvæmdir. Ljósm. Pedersen. Ljósmyndaþjónusta á Sauöárkróki.
lega í náinni framtíð.
Hugbúnaðargerð hefur vaxið ört
hér á landi á liðnum árum. Sífellt
aukin notkun tölva í atvinnu- og
einkalífí og gríðarlegur vöxtur Nets-
ins mun líklega kalla á áframhald-
andi vöxt í hugbúnaðargerð. Spáð er
að ársverkum í þeirri grein fjölgi um
nokkur hundruð á næstu fimm
árum.
Menningarstarfsemi af ýmsu tagi,
svo sem leikhús, kvikmyndahús,
söfn o.fl., hefur vaxið mjög á liðn-
um áratugum. Hún er hluti af nú-
tímalífi einstaklinga og verður sí-
fellt rúmfrekari þáttur í lifi þéttbýl-
isbúa. Menningarstarfsemin er
nokkuð háð efnahagssveiflum og
frítíma. Hliðstæðrar þróunar gætir í
tómstundastarfsemi, í skemmtana-
iðnaði og fþróttum. Hér ræðir um
starfsgreinar sem hafa mikla vaxtar-
möguleika með styttri vinnutíma og
auknum kaupmætti. Því er líklegt að
nokkur fjöldi manna geti fengið þar
störf við hæfi í framtíðinni.
Ymsar atvinnugreinar: Aður-
nefnd athugun á mannaflaþörf at-
vinnugreina er hvergi nærri tæm-
andi og tekur einungis til hluta at-
vinnulífsins. Hagsveiflur og aðrir
þættir, svo sem tæknivæðing og
sameining fyrirtækja og stofnana,
hafa víðtæk áhrif á fjölgun eða
fækkun starfa. I ljósi þess að góðar
horfur eru í íslensku atvinnulífi -
spáð er hagvexti, verðbólga er tak-
mörkuð og kaupmáttur fer vaxandi
- eru líkur á því að störfum fjölgi í
efnahagslíftnu sem heild. Þar ræðir
um bein hagvaxtaráhrif. Spáð er að
slík áhrif geti fjölgað ársverkum um
1000-1500 á næstu fimm árum.
Af framansögðu má ráða að áætl-
að er að störf í landbúnaði og fisk-
veiðum og -vinnslu fækki í framtíð-
inni, en störfum við stóriðju, bygg-
ingariðnað, verslun og þjónustu af
ýmsu tagi fjölgi mjög. Þá er því
spáð að aukning verði í heildar-
fjölda starfa á vinnumarkaði. Þegar
nánar er að gætt birtist markvisst
byggðamynstur: Frumvinnslustörfm
eru aðallega úti á landi, en vaxtar-
greinarnar (verslun, stóriðja og
þjónusta) í Reykjavík og nágrenni.
Hvaö er til ráöa?
Ljóst er að vandi landsbyggðar-
fólks er mikill. Snar þáttur í því er
einhæft atvinnulíf sem gerir ungu
fólki ókleift að snúa aftur til heima-
byggðar að loknu háskóla- eða sér-
námi. Jafnframt eru allar líkur á því
að hefðbundnar aðgerðir í byggða-
málum dugi skammt til að breyta
þróunarmynstri liðinna ára. Ný
hugsun og nýjar leiðir þurfa að
koma til. Hér verður imprað á
nokkrum slíkum leiðum.
Mjög mikilvægt er að efla grunn-
gerð svæða úti á landi til að örva at-
vinnulífið. Það er gert með ýmsum
aðgerðum, svo sem að örva fjárfest-
ingu í samgöngum, menntun, bygg-
ingum og fjarskiptum, einnig að
beina fjárfestingu hins opinbera til
slíkra staða, svo sem með því að
stofna/flytja opinberar stofnanir.
Ennfremur þarf að stórefla mennta-
og endurmenntunarkerfi á lands-
byggðinni og auka rannsóknarsam-
vinnu innlendra og erlendra há-
skólastofnana og fyrirtækja. Tryggja
verður fjármagn (lán, hlutafé,
styrki) til nýrra rekstrarverkefna og
auka erlend tengsl fyrirtækja á
landsbyggðinni.
Svæðisbundnar þróunarstofur
gegna einnig mikilvægu hlutverki til
að örva hagvöxt og nýsköpun og
fjölga atvinnutækifærum. Hlutverk
þeirra eru margvísleg, svo sem að
veita nýjum og starfandi fyrirtækj-
um ráðgjöf um stjómun, rekstur og
tækniþróun; aðstoða fyrirtæki við
verkefna- og styrkjaöflun innan-
lands, hjá Evrópusambandinu og
víðar; standa fyrir kynningu,
fræðslu og námskeiðahaldi fyrir ein-
staklinga og stjómendur í samstarfi
við framhalds- og háskóla og sam-