Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Qupperneq 38
Árið 1936 voru samþykkt á Al-
þingi lög sem m.a. heimiluðu ríkis-
stjóminni að taka eignamámi jarð-
irnar Krýsuvík og Stóra-Nýjabæ í
Grindavíkurhreppi. Þegar eignar-
nám hefði farið fram skyldi afhenda
Hafnarfjarðarkaupstað afnotarétt
jarða þessara, þannig að hann fengi
þörf kaupstaðarins fyrir hita, ræktun
og sumarbeit fullnægt, en Gull-
bringusýslu skyldi aíhenda lítt rækt-
anlegt beitiland jarðanna sem afrétt-
arland fyrir sauðfé, hvort tveggja
eftir því sem staðhættir og landrými
leyfðu. Eignarnámið fór fram og
ríkissjóður greiddi eigendum mats-
verð jarðanna. Árið 1940 samþykkti
Alþingi breytingu á fyrrnefndum
lögum og segir þar að jarðimar skuli
afhentar kaupstaðnum og sýslunni
þannig „að sýslan fái í sinn hlut lítt
ræktanlegt beitiland jarðanna til
sumarbeitar fyrir sauðfé ... en
Hafnarfjarðarkaupstaður fái jarðim-
ar að öðru leyti með öllum gögnum
og hlunnindum, sem jörðunum fylg-
ir og fylgja ber að undanteknum
námuréttindum“. Sérstök matsnefnd
framkvæmdi skiptagerð, þar sem
ákveðið var hvern hluta jarðanna
kaupstaðurinn skyldi fá og hvern
hluta sýslan.
Eins og ljóst er af framansögðu
voru jarðimar teknar eignamámi til
þess eins að afhenda þær síðan
kaupstaðnum og sýslunni. Fyrst
virðist hafa verið ætlunin að ríkið
gæti átt jarðirnar en afhenti þá af-
notaréttinn. Með lögunum frá 1940
er hins vegar ákveðið að láta jarð-
imar af hendi til eignar með öllum
gögnum og hlunnindum að undan-
teknum námuréttindum, enda er
ákvæði um það í lögunum að sýslu-
sjóður og bæjarsjóður greiði ríkis-
sjóði sama verð og hann hafði greitt
DÓMSMÁL
Krýsuvíkurland
Guðmundur Benediktsson hrl.
fyrir jarðimar. Það var sem sé ekki
ætlun löggjafans að ríkissjóður
eignaðist neinn hluta af jörðunum
nema námuréttindi og mun þar
einkunt átt við brennisteinsnámu,
sem eitt sinn var starfrækt í Krýsu-
vík, en ekki malar- og hrauntöku.
Hafnarfjarðarkaupstaður fékk af-
sal fyrir hluta af jörðunum 1941. Er
um að ræða stórt landsvæði milli
Kleifarvatns og sjávar. Afsalið til
sýslunnar er dagsett 29. sept. 1941.
Þar segir að ríkissjóður afsali öllu
lítt ræktanlegu beitilandi jarðanna til
„sumarbeitar fyrir sauðfé“. Enn-
fremur er tekið fram að undanskilin
séu öll önnur afnot. Fyrir þetta
guldu sýslu- og bæjarsjóður samtals
þá fjárhæð sem ríkissjóður hafði
greitt fyrir jarðimar.
Landsvæði það sem hér er um að
ræða er mjög víðáttumikið. Það nær
frá mörkum Ámessýslu vestur fyrir
hálsana vestan Kleifarvatns og frá
Grindaskörðum til sjávar. Á þessu
svæði er landslag mjög fjölbreytt.
Víða er mikil náttúrufegurð, fjöll og
úfm hraun en einnig em þar gróður-
sælir dalir og friðsæl fjallavötn.
Hér munar miklu frá því sem lög-
gjafinn ætlaðist til. Mestur hluti
Krýsuvíkurlandsins er enn eign rík-
issjóðs. Það er að mínu áliti engum
vafa undirorpið að ríkissjóður fékk
eignarnámsheimildina til þess eins
að afsala sýslu og kaupstað jörðun-
um með þeim hætti sem í lögunum
frá 1941 greinir og á sama verði og
hann galt fyrir þær. Ríkissjóður hef-
ur því aldrei afsalað til Hafnarfjarð-
arkaupstaðar þessum hluta jarðanna
sem sýslusjóður nýtur beitarréttar
yfir, sem honum ber þó samkvæmt
skýmm orðum lagatextans frá 1940,
þrátt fyrir margítrekaðar áskoranir
kaupstaðarins um að fá útgefið slíkt
afsal. Það er aðeins þetta formsatriði
sem vantar en þessu formsatriði þarf
að fullnægja. Kaupstaðnum er því
nauðugur sá kostur að fá ríkissjóð
knúinn til þess með dómi að afsala
þessu landi til sín.
ERLEND SAMSKIPTI
Ráðstefna í Finnlandi um nýtingu úrgangs
Félag norrænna búvísindamanna
(NJF) efnir dagana 23.-25. nóvem-
ber nk. til ráðstefnu um nýtingu úr-
gangs, jafnt lífræns húsasorps sem
seyru. Ráðstefnan verður haldin í
Rannsóknarstöð landbúnaðarins í
Jokioinen, um 10 km frá bænum
Forssa í Finnlandi.
Á ráðstefnunni verður gefið yfirlit
um meðferð úrgangs á Norðurlönd-
um, kynntar aðferðir við endur-
vinnslu húsasorps, meðhöndlun
seyru í stórum stíl frá bæjum og
smáum byggðarkjörnum, rætt um
hættuleg efni og hollustuvemd við
nýtingu úrgangs, jarðvegsmyndun
og áburðargildi safnhaugamoldar.
Nánari upplýsingar um ráðstefn-
una veita Olafur Dýrmundsson hjá
Bændasamtökum Islands, í síma
563 0300, og Magnús Oskarsson, í
síma554 1002.
1 OO