Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Blaðsíða 56
ORYGGISMAL
Hlúð að gróðri við Elliöavatn. Unglingar úr Vinnuskóla Reykjavíkur aö störfum.
Vinna barna og unglinga
Hersir Oddsson, forstjóri Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar ogfulltrúi
sambandsins í stjóm Vinnueftirlits ríkisins
Vinnueftirlit ríkisins vinnur nú að
útgáfu reglugerðar um vinnu bama
og unglinga, en í maí 1997 breytti
Alþingi lögum nr. 46/1980, um að-
búnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum og er reglugerðin unn-
in í framhaldi þeirrar breytingar.
Undirbúningur fyrir reglugerðina er
tímafrekur og því mun útgáfa henn-
ar verða fyrst væntanleg í lok árs
1998 en innihaldið liggur fyrir í
drögum og er gjarnan litið til þess
þegar gefnar eru leiðbeiningar frá
skrifstofu Vinnueftirlitsins.
Sérstaklega verður í reglugerðinni
fjallað um vinnu í vinnuskólum
sveitarfélaga, fræðilegt og verklegt
nám. Segir í drögum að með fræði-
legu eða verklegu námi sé átt við
nám sem byggist á löggjöf um
grunnskóla hverju sinni og vinnu
bama og unglinga á vegum sveitar-
félaga. 1 ljósi þess að einhver tími
líður þar til reglugerðin verður
formlega gefin út var ákveðið að
kynna helstu ákvæði sem snerta
sveitarfélögin. Er áhugasömum
þannig gefinn kostur á að koma á
framfæri ábendingum.
Hugtökin „ungmenni, unglingur og barn" eru í lögunum skilgreind þannig:
Ungmenni er einstaklingur undir 18 ára aldri Unglingur einstaklingur sem ekki er i skyldunámi, en á bilinu 15 til 18 ára
Barn einstaklingur sem er undir 15 ára aldri
1 1 8