Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Page 59
HEILBRIGÐISMAL
marki og leggi fram raunhæfa
stefnu í vímuvamamálum sem og í
afbrotavömum. Þeirri stefnu verði
fylgt eftir í viðkomandi ráðuneytum
og síðan í lögregluumdæmum
landsins. Þá er krafist að ríkið leggi
til fjármagn til forvama, hvort sem
um er að ræða aðferð til að skapa
megi lífvænlegra samfélag fyrir
ungt fólk og til að þeir aðilar, sem
sannanlega hafa það hlutverk að
stemma stigu við vímuefnaneyslu,
geti sinnt hlutverki sínu eins og lög
og reglur kveða á um.
Lagt var til að stjómvöld beiti sér
fyrir því að sjálfræðisaldurinn verði
hækkaður úr 16 ámm í 18 ár.
Skorað var á stjómvöld að beita
sér fyrir endurskoðun á stöðu fíkni-
efnarannsókna hér á landi. Við þá
endurskoðun verði sérstaklega horft
til heimilda stjórnenda fíkniefna-
deildar lögreglunnar til ákvörðunar-
töku hvað varðar viðbrögð við
beiðnum um samstarf og aðstoð við
lögregluna úti á landi. Þá verði met-
ið hvort ástæða sé til að fjölga tíma-
bundið lögreglumönnum sem rann-
saka fíkniefnamál og framleiðslu
ólöglegs áfengis, hvort fíkniefna-
deildin sé nægilega vel tækjum búin
svo hún geti rækt starf sitt með sem
áhrifaríkustum hætti og hvort tíma-
fjöldi til afnota til þessa rannsóknar-
þáttar sé nægilegur með hliðsjón af
þörfmni. Kannaðir verði nýir mögu-
leikar í baráttunni við innflytjendur
og dreifingaraðila fíkniefna, eflt
verði samstarf við lögreglu og toll-
gæslu annars staðar á landinu og að
lögreglumönnum úti á landi verði
gefinn kostur á að starfa tímabundið
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík. Gera þarf lögreglu-
mönnum úr deildinni kleift að fara
reglulega á milli einstakra lögreglu-
umdæma, kanna ástand mála og
grípa til aðgerða ef ástæða er til. Þá
verði það starf tengt möguleikum á
fræðslu og kynningu á þeim málum
í viðkomandi umdæmum. Auk þess
verði skoðað sérstaklega hvort
ástæða er til að gefa starfsmönnum
fíkniefnadeildar kost á meiri þjálfun
erlendis. Þá er ríkisstjómin hvött til
Dorgveiðikeppni á vegum Æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar.
að beita sér fyrir skipulegu sam-
starfi allra þeirra opinberu aðila er
fást eiga við vímuefnamál með ein-
um eða öðrum hætti, sérstaklega þó
þeirra sem dregið geta úr líkum á að
slík ólögleg efni komist inn í landið,
og semji reglur um hver þeirra aðila
eigi að hafa hvaða forræði á hverju
stigi fikniefnarannsókna.
Lagt var til að ríkið sjái til þess að
ákveðin fjárhæð verði framvegis að-
gengileg til fræðslu- og upplýsinga-
starfa hjá lögreglunni og að tryggt
verði að samræmingar á því sviði
verði gætt.
Skorað var á stjómvöld að beita
sér fyrir því að meðferð fíkniefna-
mála geti orðið sem virkust í refsi-
vörslukerfinu með sérstakrí athygli
á unga afbrotamenn og síbrota-
menn. Nauðsynlegt sé að afbrota-
menn eigi þess jafnan kost að fá að
kynnast afleiðingum gerða sinna
með sem áhrifaríkustum hætti, hvort
sem refsingin miðast við viðurlög
eða meðferð. Þá er og hvatt til þess
að stjórnvöld beiti sér fyrir því að
jafnan verði tekið tillit til vamaðar-
áhrifa þeirra, sem dómar eiga að
geta haft á aldur manna og þátttöku
í meðferð fíkniefna, auk þess sem
þau sjái til þess að ávallt verði á
boðstólum þau bestu úrræði, sem
dregið geta úr líkum á endurteknum
brotum.
Vinnuhópurinn lagði til að Sam-
band íslenskra sveitarfélaga beiti sér
fyrir því að framkomnum tillögum
verði fylgt eftir í einstökum þáttum
sem og í heild. Jafnframt skoraði
hann á einstök stjómvöld að fylgja
tillögunum eftir, hver á sínum stað.
Iferkefnisstjórn í vímu-
vörnum hjá Hafnarfjaröar-
bæ
I framhaldi af tillögum Sambands
íslenskra sveitarfélaga skipaði
Hafnarfjarðarbær sérstaka verkefn-
isstjórn í vímuvörnum. Hlutverk
hennar var m.a. að samræma og
samhæfa allar stofnanir, nefndir og
ráð á vegum bæjarins til aðgerða að
sameiginlegu markmiði. Þá var og
hlutverk stjórnarinnar að tengja
áhugafélög og einstaklinga, sem
áhuga hafa og unnið hafa að vímu-
vörnum innan bæjarfélagsins, við
það sem er að gerast á vegum bæj-
aryfirvalda.
A fyrstu fundum verkefnisstjóm-
arinnar vom lögð fram ýmis gögn til
athugunar og yfirlestrar, s.s. varð-
andi Vímuvamaskólann, Island sem
1 2 1