Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Blaðsíða 60
HEILBRIGÐISMAL
Frá íþrótta- og leikjanámskeiöi í Hafnarfiröi.
tilraunaverkefni um útrýmingu
fíkniefna í Evrópu fyrir árið 2002
(ECAD), um samráðshópa í for-
vörnum í ýmsum hverfum Reykja-
víkur og um vímuvamaátak í grunn-
skólum borgarinnar. Lagður var
fram nýr bæklingur borgarinnar um
áfengis- og vímuefnavanda og
stefnu gagnvart starfsfólki borgar-
innar, leitarstarf og samstarl' við for-
eldra og útdráttur úr erindi Ragnars
Gíslasonar, skólastjóra og þáv. for-
manns Vímulausrar æsku, um
grunnskólann og vímuvarnir. A
fyrsta fundi höfðu skýrsla og tillög-
ur verkefnisstjórnar dómsntálaráð-
herra vegna átaks í ávana- og fíkni-
efnavörnum verið lagðar fram,
ályktun Sambands íslenskra sveitar-
félaga um vímuefnavamir, bréf þess
til sveitarfélaga auk tíu punkta til-
lagna vinnuhóps þess um stefnu
samtakanna í vímuefnamálum og
skýrslu forsætisráðuneytisins frá því
í apríl 1996 um útbreiðslu fíkniefna
og þróun ofbeldis.
Fundarmenn kynntu og fóru yfir
það helsta er lýtur að þeirra vett-
vangi á sviði vímuvarna á meðal
stofnana og nefnda bæjarins, auk
þess sem þeir lýstu hugmyndum og
möguleikum í þeim málum. M.a.
voru lögð fram lög og reglur
íþróttabandalags Hafnarfjarðar
(IBH), sagt var frá formannafundi
ÍBH, en á þeim fundi hafði mikið
verið rætt um störf að vímuvömum
og hvernig forystan geti orðið að
liði. Þá var kynnt tillaga stjórnar
ÍBH um að ÍBH hefði forgöngu um
samstarf við bæjarfélagið um jafn-
ingjafræðslu og sagt frá áhuga
stjómar IBH um að koma á fundi
með íþróttahreyfingunni um vímu-
varnir í samvinnu við vímuvama-
nefnd. Loks var sagt frá banni á
reykingum í íþróttamannvirkjum
Hafnarfjarðar og kynntar samþykkt-
ir á þingi íþróttasambands Islands
(ÍSÍ) er sýna áhuga íþróttahreyfing-
arinnar á vímuvömum. Sagt var frá
kynningu starfsfólks félagsmið-
stöðvarinnnar Vitans og félagsmála-
stofnunar með foreldrum í skólum
bæjarins og auknum áhrifum hennar
á vilja þeirra til samstarfs, skipu-
lögðum fundum vímuvamanefndar í
grunnskólunum í samvinnu við
skólana og foreldrafélög, nýju verk-
efni, sem Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavanda (SAA)
er að hefja í þemaviku fyrir nem-
endur 8. og 10. bekkjar í gmnnskól-
unum um unglinga, áfengi og önnur
vímuefni. Þá voru kynntar hug-
myndir um sjálfsögð tengsl fram-
leiðenda vímuefna og afleiðingar
neyslunnar, aðgengi að áfengi, hlut-
verk grunnskólanna, markmið
íþrótta og annarrar æskulýðsstarf-
semi, hugsanlegt umbunarform fyrir
þá unglingahópa er náð hafa árangri
í vímuvörnum, gildi fordæmis og
nauðsyn þess að virkja fólk á öllum
aldri til þátttöku. Rætt var um for-
dæmi bæjarins, boð og uppskeruhá-
tíðir þar sem afreksfólki í íþróttum
er veitt viðurkenning og áhrif bæjar-
ins varðandi stuðning hans við
íþróttafélög m.t.t. vímuvama. Starf
Vitans og annarra félagsmiðstöðva
var kynnt, viðfangsefni Götuvitans
og eftirlit hans með einstökum vín-
veitingastöðum er hleypa inn og
selja ungmennum áfengi. Þá voru
rædd tengsl við lögreglu og félags-
málastofnun, um kannanir á tóbaks-
kaupum unglinga og aðgerðir æsku-
lýðsráðs gegn þeim, sem selja böm-
um og ungmennum tóbak. Fjallað
var um aðstöðu fyrir unga hljómlist-
armenn uppi á Hrauni og áhuga
skólayfirvalda á samstarfi við þá er
vinna að uppbyggilegum verkefnum
fyrir ungt fólk. Ymislegt fleira kom
fram á fundunum.
Á einum fundanna kynntu t.d.
fulltrúar áhugafélaganna, Kiwanis-
klúbbsins Sólborgar og Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar, og fóru yfir það
helsta er lýtur að verkefnum þeirra á
sviði vímuvarna. Þá kom fram að
Lionsklúbbamir standa fyrir „vímu-
vamadegi“ í Hafnarfirði einu sinni á
ári. Við framkvæmd hans njóta fé-
lögin stuðnings æskulýðs- og tóm-
stundaráðs Hafnarfjarðar (ÆTH),
s.s. með láni á hljóðkerfi o.fl. Farið
væri í 7. bekki grunnskólanna á
hverju ári, ávarp flutt og merki af-
hent. Lionshreyfingin stendur að
námsefni Lions Quest. Loks kom
það fram hjá fulltrúa Lions að hann
sem kennari hefði góða reynslu af
rekstri félagsmiðstöðvar sem tengd
væri skólanum á Hvaleyrarholti. Fé-
lagsmiðstöðvar í hverfum bæjarins
væru æskileg þróun því samspil
skóla og félagsmiðstöðvar gæfi
mikla möguleika á nýtingu húsnæð-
is og framkvæmd æskulýðsstarfans.
1 22