Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Page 61
HEILBRIGÐISMAL
Grunnskólaháti'6. Frá skemmtun fimm skóla sem haldin var f Bæjarbiói og í íþróttahúsi
Víöistaöaskóla. Árni Guömundsson, æskulýösfulltrúi Hafnarfjaröarbæjar, tók mynd-
irnar sem greininni fylgja.
Fulltrúi lögreglu lagði áherslu á
gott samstarf lögreglu við stofnanir
bæjarins og áhugafélög í bænum.
Samvinna þessara aðila væri mikil-
væg í vímuvarnamálum sem og á
öðrum sviðum. Nefndi hann Götu-
vitann og foreldraröltið sem dærni
um árangursríka samvinnu síðari
ára. Hann taldi nauðsynlegt að
miðla upplýsingum til þessara aðila.
Þá lýsti hann breyttu eftirliti lög-
reglu með áfengisveitingahúsum í
bænum og áhuga hennar á breyttum
starfsaðferðum í baráttunni við
fíkniefnaaðila.
Kynnt var hugmynd um náið til-
sjónarsamstarf félagsmálayfirvalda,
skóla og lögreglu með ungum ein-
staklingum, sem komist hefðu í kast
við lögin. Slík tilsjón hefði t.d. gefið
góða raun í Svíþjóð. Fram kom að
áhugi fólks í bænum og vilji til sam-
starfs væri mikill á þessu viðfangs-
efni. Mikið hefði áunnist en ástæða
væri til að samhæfa og efla sam-
vinnu hinna ýmsu aðila er vinna
eiga að vímuvömum svo auka megi
enn frekar líkur á góðum árangri.
Tillögur verkefnisstjórnar
Farið var yfir möguleika þá sem
kynntir höfðu verið, hugmyndir þær
sem fram höfðu komið um aukið
samstarf og framkvæmd einstakra
verkefna svo og tillögur. Nefndar-
menn voru í framhaldi af því sam-
mála um að vísa eftirfarandi tillög-
um til bæjarráðs sem og hlutaðeig-
andi nefnda og ráða til umræðu
og/eða afgreiðslu:
• Vímuvamanefnd Hafnarfjarðar
og skólanefnd eigi frumkvæði að
kynningar- og samráðsfundum við
vímuvarnanefndir á höfuðborgar-
svæðinu. Leitað verði t.d. eftir
áhuga Reykvíkinga á samstarfi, s.s.
varðandi vímuvamaskólann, verk-
efnið um vímuefnalausar borgir í
Evrópu (ECAD), tilraunaverkefnið
um vímuefnalaust ísland fyrir árið
2002, samráðsverkefni í forvömum,
vímuvamaátak í gmnnskólum, jafn-
ingjafræðsluna o.fl.
• Félagsmálastofnun kynni sér
gögn og bækling um áfengis- og
vímuefnavanda sem og stefnu sveit-
arstjórna gagnvart starfsfólki sínu
varðandi það mál. Unnin verði
greinargerð og lögð fram drög að
slíkri stefnu fyrir Hafnarfjarðarbæ.
• Æskulýðs- og tómstundaráð
leggur til að leitarstarf ráðsins verði
eflt svo og tengsl þess við samsvar-
andi starfsfólk ráða nágrannasveit-
arfélaganna. Hugað verði að og
vakin athygli á möguleikuin á nýj-
um úrræðum varðandi einstaklinga,
sem þarfnast meiri athygli en aðrir
vegna vímuefnaneyslu og þarfnast
sérstaks stuðnings.
• Hlúð verði að samstarfi foreldra
varðandi eftirfylgju og eftirlit með
að reglum um útivist barna verði
fylgt. Vímuvamanefnd, félagsmála-
stofnun, æskulýðs- og tómstunda-
ráð, íþróttaráð og skólanefnd leggi
sameiginlega áherslu á skipulega
fræðslu og kynningarfundi fyrir for-
eldra og böm í eldri bekkjum gmnn-
skólans varðandi þær reglur sem og
vímuvamir, auk þess sem lögð verði
áhersla á að kynna skipulega og efla
áhuga bama á þátttöku í heilbrigðu
íþrótta- og tómstundastarfi.
• Stutt verði við einstök verkefni
vímuvamanefndar í gmnnskólunum
í samvinnu við skólana og foreldra-
félög, s.s. nýtt verkefni, sem SAA er
að hefja í þemaviku fyrir nemendur
8. og 10. bekkjar í gmnnskólunum
um unglinga, áfengi og önnur vímu-
efni.
• Bæjaryfirvöld geri dómsmála-
ráðherra/lögreglustjóra ákveðið
skriflega grein fyrir áhuga sínum á
að fullnægjandi löggæslu verði
haldið uppi í bænum og að lög-
gæslustörf taki ekki síst mið af því
að vernda börn og ungmenni sem
og annan almenning fyrir þeim vá-
gesti sem vímuefni em.
• Vakin er athygli á tillögum
Sambands íslenskra sveitarfélaga er
lúta að ábyrgð og skyldum sveitar-
félaga varðandi vímuvamir, mögu-
leikum þeirra á að spyma við fótum
og nauðsyn á stuðningi þeirra við
hverja þá viðleitni, sem höfð er í
frammi til þess að ná megi sem
bestum árangri. Mikilvægt er að
bæjarfulltrúar í Hafnarfirði geri sér
grein fyrir því hlutverki sínu og
marki stefnu í þeim málum.
• Bæjaryfirvöld hvetji alla bæjar-
búa í orði til að leggja sitt af mörk-
um í vímuvömum, hvort sem um er
að ræða böm eða fullorðið fólk. Þau
1 23