Sveitarstjórnarmál - 01.08.1999, Side 51
MENNINGARMAL
Á myndinni er María Pálsdóttir, húsfreyja í Vogum í Kelduhverfi, að spinna úr kembu.
geyma býsna víðfeðmt úrtak af
þeim áhöldum og öðrum munum er
notaðir hafa verið um aldir. Má geta
þess að m.a. var Ragnar Ásgeirsson,
þáverandi ráðunautur Búnaðarfélags
Islands, fenginn til að ferðast um
sýsluna og hefúr að öllum líkindum
komið á hvern bæ, þó að árangur
væri misjafn, tii að safna munum.
Þetta varárið 1959.
Safnið hefur einnig að geyma
safn mynda frá upphafi myndatöku
á landinu, þ.e. mannamyndir frá
hverjum bæ í sýslunni, auk mynda
af viðkomandi bæ, öllum númeruð-
um og skrásettum.
Munir á skrá munu nú vera yfir
2800 talsins, en á bókasöfnunum
nær 20 þúsund bindi, þar af töldust
bækur Helga í Leirhöfn um 9 þús-
und bindi; af því er stærsti hlutinn
innbundinn og gylltur af honum, hið
vandaðasta safn.
Héraðsnefnd sýslunnar hefur yfír-
umsjón með söfnunum og leggur til
visst fjármagn árlega eftir settum
reglum og í samráði við fimm
manna safnstjóm, en eins og áður
hefur verið drepið á, hefur komið
dálítil! styrkur frá ríki hin síðustu ár
i gegnum þjóðminjaráð.
S@RPA
1 7 7