Sveitarstjórnarmál - 01.12.1999, Qupperneq 59
FJÁRMÁL
MÁLEFNI FATLAÐRA
Álagning útsvars árið 2000
Útsvar er mikilvægasti tekjustofn
sveitarfélaganna í landinu. A árinu
1998 nam útsvarið 78,9% af heild-
arskatttekjum þeirra. í lögum nr.
4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga
er ákvæði um álagningu útsvars og
á hvern hátt sveitarfélag skuli
standa að álagningu þess. Fyrir 1.
desember ár hvert skal sveitarstjóm
ákveða álagningarprósentu útsvars
fyrir næsta ár og tilkynna fjármála-
ráðuneytinu það fyrir 15. desember.
Af 124 sveitarfélögum í landinu
breyttu 16 sveitarfélög álagningar-
prósentu útsvars frá fyrra ári. Þar af
Landssamband eldri borgara
skrifaði stjóm sambandsins eftirfar-
andi bréf hinn 2. desember:
„Landssamband eldri borgara
hefúr áhyggjur af sífellt hækkandi
útgjöldum eldri borgara vegna ým-
issa opinberra gjalda, án þess að
jafnhliða hækki greiðslur lífeyris ffá
almannatryggingum eða lífeyris-
sjóðum.
Fréttir nú síðustu daga bera með
sér að hjá mörgum sveitarfélögum
sé búist við verulegri hækkun fast-
eignagjalda.
Undanfarin ár hafa aðildarsamtök
Landssambandsins mjög ítrekað
bent á að fasteignagjöld séu mörg-
um ellilífeyrisþegum ákaflega erfið
og það svo að í mörgum tilfellum
hafi fólk vegna hinna miklu fast-
eignagjalda ekki efni á að legga í
eðlilegan viðhaldskostnað fasteign-
anna. Það stytti og þann eftirsóknar-
verða tíma sem fólk geti búið i eigin
hækkuðu 15 sveitarfélög álagning-
arhlutfallið en eitt þeirra lækkaði
það.
Meðalálagningarhlutfall útsvars
hækkaði úr 11,93% árið 1999 í
11,96% fyrir árið 2000.
Hámarksálagningarhlutfall út-
svars er 12,04% en lágmarksálagn-
ing er 11,24%. Alls nýtir 81 sveitar-
félag möguleika til álagningar há-
marksútsvarsprósentu en 6 sveitar-
félög leggja útsvar á samkvæmt lág-
markshlutfalli. Síðan eru 37 sveitar-
félög með álagningu útsvars þar á
milli.
húsnæði eftir að eftirlaunaaldri er
náð og auki þannig í raun á samfé-
lagslegan kostnað.
Nokkur sveitarfélög hafa brugðist
myndarlega við þessum vanda með
því að veita fólki á eftirlaunaaldri
verulegan afslátt fasteignagjalda og
er það þakkarvert.
Nú þegar líklegt er að fasteigna-
gjöld hækki verulega á næsta ári eru
það eindregin tilmæli Landssam-
bands eldri borgara til Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, að stjóm þess
hvetji sveitarfélögin til þess að láta
það ekki bitna á eldri borgurum,
heldur hækki þau þann afslátt sem
veittur hefúr verið a.m.k. sem nemi
þessari nýju hækkun gjaldanna.
Með von um vinsamleg viðbrögð.
F.h. Landssambands eldri borgara
Benedikt Davíðsson“
Skrifstofa sambandsins hefúr sent
sveitarfélögunum samrit af bréfinu.
Landsþing Þroskahjálpar:
Dagsetning yfirtök-
unnar verði ákveðin
sem fyrst
A landsþingi Landssamtakanna
Þroskahjálpar sem haldið var
14.-16. október sl. var samþykkt
svofelld ályktun:
„Skorað er á stjómvöld að ákveða
sem fyrst dagsetningu á yfirtöku
sveitarfélaga á málefnum fatlaðra.
Samtökin ítreka þá skoðun sina að
áður en af tilflutningi getur orðið
þurfí að liggja fyrir stefnumörkun
og framkvæmdaáætlun hjá sveitar-
félögum um uppbyggingu í málefn-
um fatlaðra. Við tilflutninginn þarf
að tryggja tekjustofna sveitarfélag-
anna þannig að þau geti bætt þjón-
ustuna og gert hana markvissari og
persónubundnari, sem er megintil-
gangur með yfirtökunni. Gera þarf
ráð fyrir sveigjanleika í fjármagni
með tilliti til ófyrirséðrar fjölgunar
þjónustuþega. Sú óvissa sem nú er
um yfirtökuna, hefúr haft hamlandi
áhrif á alla uppbyggingu innan
málaflokksins.“
Fleiri bílastæði íyrir
fatlaða
Á aðalfúndi Öryrkjabandalagsins
sem haldinn var í Reykjavík 6. nóv-
ember sl. var gerð eftirfarandi sam-
þykkt:
„Aðalfundur Öryrkjabandalags
Islands, haldinn í Reykjavík 6. nóv-
ember 1999, skorar á ökumenn að
virða sérstök bifreiðastæði fatlaðra.
Jafnframt er skorað á sveitarfélögin
í landinu að fjölga slíkum bifreiða-
stæðum svo fatlaðir eigi auðveldara
með að sinna erindum sínum.
Samþykkt þessi var send sam-
bandinu og það sendi hana sveitar-
félögunum.
Afsláttur af fasteignaskatti eldri borgara
lækki sem nemur almennri hækkun
fasteignaskatts
3 1 3