Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Page 19
STJÓRNSÝSLA
Reynsluverkefni á tímamótum
Hermann Sœmundsson, formaður verkefnisstjórnar reynslusveitarfélaga
Um síðustu áramót áttu sér stað ákveðin
þáttaskil á reynslusveitarfélagaverkefninu. Þá
var á enda sá tími sem verkefninu var upp-
haflega ákveðinn, en það hófst um mitt ár
1994 með setningu laga um reynslusveitar-
félög nr. 82/1994.
Þrátt fyrir hinn rúma tíma sem verkefhinu
var ákveðinn í upphafi var það ljóst á fyrri-
hluta árs 1999 að þörf væri á að framlengja
verkefnið að hluta. Ástæðan var einkum sú
að samningar um nokkur stór og umfangs-
mikil reynsluverkeíni höfðu tekið lengri tíma en ráð var
fyrir gert og fóru því ekki af stað fyrr en nokkuð var lið-
ið á reynslutímabilið.
Verkefnisstjórnin kynnti sér þess vegna viðhorf
reynsluveitarfélaganna til þess hvaða verkefni viðkom-
andi sveitarfélaga væri þörf á að framlengja. Svör bárust
ífá öllum reynslusveitarfélögunum og á þeim gmndvelli
lagði verkefnisstjómin það til við félagsmálaráðherra að
heimildir reynslusveitarfélaga til reynsluverkefna á sviði
öldrunar- og heilbrigðismála, málefna fatlaðra og stjóm-
sýslu yrðu framlengdar um tvö ár, en að aðrar heimildir
yrðu felldar brott. Félagsmálaráðherra lagði síðan frum-
varp ffam á Alþingi síðastliðið haust sem fól i sér þessa
breytingu á lögum um reynslusveitarfélög og varð fmm-
varpið að lögum fyrir áramótin.
Það em þvi verkefni fjögurra reynslusveitarfélaga,
þ.e. Akureyrar, Reykjavíkur, Hornafjarðarbæjar og
Vestmannaeyja, sem verður fram haldið til ársloka
2001. Verkeffii þeirra em eins og áður segir á sviði öldr-
unar og heilsugæslu, málefna fatlaðra og stjómsýslu.
Góö reynsla af verkefnum á sviöi bygg-
ingarmála
Tvær meginástæður vom hins vegar fyrir því að ekki
var talin þörf á að framlengja önnur verkefni reynslu-
sveitarfélaga.
í fyrsta lagi hafði það gerst á tímabilinu að Alþingi
hafði samþykkt ný lög sem breyttu í grundvallaratriðum
forsendum varðandi nokkur verkefni reynslusveitarfé-
laga. Það á við um verkefni á sviði húsnæðismála annars
vegar og vinnumála hins vegar. Eins og kunnugt er tóku
gildi ný lög um húsnæðismál í ársbyrjun
1999 og tóku þau á þeim vandamálum sem
reynslusveitarfélögin hugðust glíma við með
sínum verkefnum á sviði húsnæðismála. Þá
breyttust forsendur fyrir verkefnum sveitarfé-
laga á sviði vinnumála við það að lög um
vinnumarkaðsmál öðluðust gildi um mitt ár
1998 og með þeim fluttust vinnumiðlanir og
vinnumarkaðsmál að öllu leyti til ríkisins.
I öðru lagi var talin vera komin næg
reynsla á framkvæmd sumra verkefna, en það
á sérstaklega við um verkefni á sviði byggingarmála.
Flest reynslusveitarfélögin höfðu framkvæmt slíkt verk-
efni sem í meginatriðum fólst í því að byggingarfulltrú-
um voru veittar í sérstakri samþykkt auknar heimildir til
afgreiðslu mála á sínu sviði. Það fyrirkomulag leiddi
m.a. til þess að afgreiðslumálum fækkaði til muna í
byggingamefndum, sem gátu því einbeitt sér að stærri og
stefnumarkandi málefnum. Ennfremur leiddi þetta
breytta fyrirkomulag til mun styttri afgreiðslutíma mála.
í ljósi þessarar jákvæðu reynslu lagði verkefnisstjómin
það til við umhverfisráðuneytið að skipulags- og bygg-
ingarlögum yrði breytt á þann veg að öll sveitarfélög
gætu tekið upp þetta fyrirkomulag. Alþingi samþykkti
síðan fyrir áramót breytingu á lögunum sem gerir þessa
tilhögun almenna. Samkvæmt upplýsingum ffá umhverf-
isráðuneytinu hefur eitt sveitarfélag fyrir utan reynslu-
sveitarfélögin þegar tekið upp tilhögunina og fleiri stefna
að því á næstunni.
Málþing um stjórnsýslutilraunir
Verkefnisstjóm reynslusveitarfélaga hefur gengist fyr-
ir nokkrum málþingum um verkefni reynslusveitar-
félaga. Málþing af þessum toga em vettvangur fyrir
reynslusveitarfélögin að meta þann árangur sem náðst
hefur á einstökum sviðum, en ekki síður em þau liður í
að kynna fyrir öðmm sveitarfélögum þá reynslu sem
verkefnið er að skila, hvort sem um jákvæðar eða nei-
kvæðar niðurstöður kann að vera að ræða.
Síðasta málþingið var haldið í mars síðastliðinn og
vom þá til umfjöllunar stjómsýslutilraunir og stjórn-
sýslubreytingar. Þar kynntu fulltrúar Reykjavíkurborgar
8 1