Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Blaðsíða 20
STJÓRNSÝSLA
Frá málþingi reynslusveitarfélaganefndar í Borgartúni 6 hinn 23. mars sl. Við borðið sitja, talið
frá vinstri, Stefán Bjarkason, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Reykjanesbæ, Þór Garðar
Þórarinsson, framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar Reykjaness, aftar, og Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir borgarfulltrúi og handan borðsins Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari í Reykjanesbæ, Jónína
A. Sanders bæjarfulltrúi og Ellert Eiríksson bæjarstjóri, öll þrjú í Reykjanesbæ. Ljósm. Gunnar
G. Vigfússon.
reynsluverkefnið Miðgarð í
Grafarvogi og reynslusveitarfé-
lögin Akureyri og l lornafjaröar-
bær greindu frá þeim stjórn-
sýslulegu breytingum sem fram-
kvæmdar hafa verið í tengslum
við reynsluverkefnin. Þá voru
fluttir almennir fyrirlestrar um
málefni stjórnsýslu sveitarfé-
laga.
Afar góð þátttaka var á mál-
þinginu um stjómsýslutilraunir
sem að rnati verkefnisstjórnar
sýnir bæði áhuga á reynsluverk-
efninu og að mikil þörf er á
slíkri umræðu meðal sveitar-
stjómarmanna almennt. Af þeim
sökum telur verkefnisstjórnin
rétt að vekja athygli þeirra á því
að það kann að vera þörf fyrir
áffamhaldandi umræðu um ný-
sköpun og þróun á sviði stjóm-
sýslu sveitarfélaga óháð
reynslusveitarfélagaverkefninu.
Því er ástæða til þess að hugað
verði að því á næstu misserum í
hvaða farveg sú umræða á að
fara, ekki síst í ljósi þess að hinu formlega reynsluverk-
efni mun ljúka í árslok 2001. Verkefnisstjóm hefur ekki
lagt ffam neinar formlegar tillögur þar að lútandi enda
telur hún eðlilegt að sú umræða og stefnumörkun fari
fram á vettvangi sveitarfélaganna sjálfra, þ.e. Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Mat á verkefninu
Samkvæmt lögum um reynslusveitarfélög er það hlut-
verk óháðs úttektaraðila að meta þann árangur sem af
verkefninu hlýst og koma með ábendingar um verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga. I upphafi verkefnisins
var gerður samningur við fyrirtækið Hagvang (nú
PriceWaterhouseCoopers) um úttektina. Fyrirtækið hef-
ur reglulega sent frá sér skýrslur um framkvæmd og
framvindu verkefnisins og nú nýverið kom út skýrsla
fyrir árið 1999. Um mitt sumar mun fyrirtækið síðan
senda frá sér lokaskýrslu um framkvæmd verkefnisins á
tímabilinu 1994 til ársloka 1999 og verður hægt að nálg-
ast hana á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins, en þar er
hin nýútkomna skýrsla nú aðgengileg öllum sem áhuga
hafa.
Til viðbótar við mat óháðs úttektaraðila leggur verk-
efnisstjóm áherslu á að sjálfstætt mat komi frá reynslu-
sveitarfélögunum varðandi árangur að því er einstök
verkefni snertir eða verkefhið í heild sinni. Það sama á
við um hlutaðeigandi ráðuneyti. Hvort tveggja er nauð-
synlegt til að sem best mynd fáist af verkefninu og svo
hægt sé að varpa ljósi á hvaða breytingar er eðlilegt að
gera á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga i náinni
ffamtíð.
í haust áfonnar verkefnisstjómin að halda fund með
reynslusveitarfélögunum, ráðuneytum, Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga og fulltrúum löggjafans þar sem
reynslan af verkefninu verður tekin til umræðu. Tilgang-
urinn með þeim fundi er þríþættur:
I fyrsta lagi að varpa ljósi á ffamvindu verkefnisins í
heild sinni og ræða niðurstöðu varðandi einstök verkefni.
I öðm lagi að svara því hvaða breytingar þarf að gera á
löggjöfinni til þess að verkefni reynslusveitarfélaga geti
haldið áffam er verkefninu lýkur í árslok 2001.
I þriðja lagi er tilgangurinn með fundinum sá að þessir
aðilar ræði almennt um verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga. Að mati verkefnisstjórnar er sú umræða afar
brýn. Annars vegar með tilliti til þess að reynslusveitar-
félagaverkefnið er senn á enda og tími kominn til að gera
það dæmi upp í ljósi þeirra markmiða sem sett vom í
upphafi. Hins vegar í ljósi þeirra breytinga sem átt hafa
sér stað á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hin síðari
ár óháð reynslusveitarfélagaverkefninu. Hvort tveggja
kallar á ítarlega umræðu ofangreindra aðila um verka-
skiptingu rikis og sveitarfélaga í framtíðinni.
Að endingu er rétt að hvetja áhugasama um að kynna
sér nýjustu úttektarsskýrslu PriceWaterhouseCoopers á
heimasíðu félagsmálaráðuneytisins, en slóðin að henni er
„www.stjr.is/fel“.
82