Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Page 28
UMHVERFISMAL
Náttúran innan seilingar
Rannsóknar- og fræðsluverkefni fyrir sveitarfélög
Bjami Jónsson, deildarstjóri Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar
að Hólum í Hjaltadal
Inngangur
Vaxandi áhugi og skilningur er á
mikilvægi þess að hafa aðgang að
ósnortinni náttúru til útivistar. Til-
vist svæða sem gegnt geta þessu
hlutverki í nágrenni stórra þéttbýlis-
staða er ómetanleg. Jafnvel þó að
slík svæði séu til staðar þá skortir
mjög á að fólk hafi aðgang að upp-
lýsingum um eðli og sérkenni þeirr-
ar náttúru sem um ræðir og þá sögu
sem hún geymir. Með því að stuðla
að samþættri fræðslu um sögu og
fjölbreytt lífríki útivistarsvæða öðl-
ast þau mun meira gildi í hugum
fólks og stuðlað er að aukinni virð-
ingu fólks fyrir umhverfi sínu. Um-
hverfisnefnd Garðabæjar og garð-
yrkjustjóri, Erla Bil Bjarnardóttir,
hafa ásamt greinarhöfúndi unnið að
slíku átaki við Vífilsstaðavatn sem
er innan bæjarmarkanna. Nefndin
hefúr staðið fýrir rannsóknum á Víf-
ilsstaðavatni og umhverfi þess þar
sem markmiðið er ekki einungis að
afla aukinnar þekkingar á svæðinu,
heldur einnig að miðla henni til bæj-
arbúa.
Vífilsstaöavatn, ákjósan-
leg staösetning
Vífilsstaðavatn og umhverfi er
innan þéttbýlismarka, en svæðið er
samt vel afmarkað og er ákjósanlegt
til útivistar, t.d. til fuglaskoðunar og
stangveiði. Vífilsstaðavatn og um-
hverfi þess nýtur sérstakrar vemdar
vegna þess að vatnsból bæjarins em
innan við vatnið. Það gefúr svæðinu
ekki síst gildi að það hefúr sérstöðu
samanborið við áþekk útivistar-
svæði í nærliggjandi sveitarfélögum
vegna þess hve lítið náttúmlegu líf-
ríki svæðisins hefur verið raskað.
Aður en verkeftiið hófst hafði líf-
ríki vatnsins tiltölulega lítið verið
rannsakað og almenningur hafði
haft mjög takmarkaðan aðgang að
upplýsingum um lífríki og sérstöðu
svæðisins. Jafnffamt vom uppi hug-
myndir um sleppingar á framandi
tegundum eða stoffium fiska í Víf-
ilsstaðavatn sem hefði skaðað lífríki
þess, eins og tíðkast hefur í vötn
innan bæjarmarka sveitarfélaga víða
um landið. Slíkan skaða hefði
aldrei verið hægt að bæta að fúllu.
Það má því segja að verkeffiið hafi
komið til á réttum tíma, sem varð
eftir kaup Garðabæjar á stórum
hluta af landi Vífilsstaða.
Rannsóknir
íslensk vatnakerfi eru Qölbreytt
og má að miklu leyti skýra þennan
breytileika út frá mismunandi aldri
jarðlaga og einkennum vatnasviða.
Það er til að mynda mikill munur á
því hve framleiðin vatnakerfi em.
Flest vötn hafa því sérstöðu þegar
þau em borin saman við önnur vötn.
Vart er því hægt að fjalla um ís-
lenskt lífríki án samhengis við þau
búsvæði sem móta það. Landið er
ungt, einangrað og mótað af
stöðugri eldvirkni. Því em hér fáar
tegundir lífvera en mjög fjölbreytt
búsvæði fyrir þær. Þessi fjölbreytni
búsvæða og tegundafæð stuðlar því
að miklum breytileika innan teg-
unda sem kemur fram í ýmsum
svæðisbundnum aðlögunum. Gott
dæmi um slíkt er einmitt íslenskt
vatnalif. Fjölbreytni i lífssögu og
aðlögun fiska og annarra vatnadýra
tengist gerð vatna og breytileika í
umhverfisþáttum.
Rannsóknir voru gerðar á smá-
dýralífi og fiskistofhum Vífilsstaða-
vatns sumarið 1998 og voru þær
rannsóknir framkvæmdar af starfs-
mönnum Veiðimálastofnunar. Nið-
urstöður rannsóknanna verða m.a.
settar inn í samræmdan gagnagrunn
fyrir íslensk vötn sem mun verða til-
tækur á tölvutæku formi og opinn
almenningi. Rannsóknimar á Vífils-
staðavatni eru hluti af yfirgripsmikl-
um samanburðarrannsóknum á fjöl-
breytileika íslensks vatnalífs og nið-
urstöðurnar munu auka við þekk-
ingu okkar á lífríki íslenskra vatna.
Nú er til nákvæm og samanburðar-
hæf úttekt á lífríki Vífilsstaðavatns í
heild sinni svo sem hvað varðar líf-
fræðilegan fjölbreytileika. Þannig
verður í ffamtíðinni hægt að fylgjast
með því hvort röskun verður á líf-
ríki. Merki um slíkt væri til að
mynda breytt samsetning smádýra-
tegunda eða ástand fiskistofha.
Rannsóknir á Vífilsstaðavatni
leiddu í ljós að lífríki vatnsins er
óvenju auðugt og fjölbreytt saman-
borið við önnur vötn á íslandi.
90