Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Side 49

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Side 49
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM bindist samtökum og taki þátt í upp- byggingu stofunnar. Inniausn og sala félagslegra íbúða Aðalíundur SSA 1999 samþykkir að lýsa yfir fullum stuðningi við niðurstöður starfshóps Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um innlausnir og sölu íbúða í félagslega íbúðakerf- inu. Afskriftir vegna þeirra verði að fullu greiddar af ríkinu. Sameining sveitarfélaga Aðalfundur SSA hvetur stjórn sambandsins að fylgjast vel með umræðu um sameiningu sveitarfé- laga i Qórðungnum og styðja við undirbúning sameiningar þar sem það á við. Kynningarbás Heilbrigðíseftirlits Austurlands (HAUST) á aðalfundinum í Brúarási og Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri HAUST. Eftirlit með atvinnustarfsemi Aðalfundur SSA 1999 beinir því til löggjafarvaldsins að taka til endurskoðunar þau lög og reglugerðir sem fjalla um eftirlit með atvinnustarfsemi með það að markmiði að einfalda og lækka kosmað við það sem í daglegu tali er nefnt eftirlitsiðnaður. Svofelld greinargerð Jylgdi tillögunni: Talsverð brögð eru að því að fleiri en ein stofnun komi að eftirliti á sömu fyrirtækjunum. Af þessu bera fyrirtækin kostnað sem lækka mætti með því að sam- ræma eftirlitið og koma í veg fyrir að oft sé greitt fyrir sömu þjónustu. Framhaldsnám Aðalfundur SSA 1999 beinir því til stjómvalda að standa við fyrirætlanir um að efla menntun og símennt- un á landsbyggðinni, sbr. þingsályktun um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1998-2001. Tryggja þarf rekstrargrundvöll framhaldsskólanna á landsbyggðinni. Taka þarf tillit til smærri námshópa og heimavista í reiknilíkani því sem menntamálaráðuneyti notar til að meta fjárþörf framhaldsskólanna. Einnig þarf að taka tillit til kostnaðar lítilla skóla vegna samstarfs þeirra í milli. Því er beint til stjómvalda að gera átak til að efla menntun á einstökum sviðum, s.s. menntun kennara, leikskólakennara og hjúkrunarfræðinga, með því að veita fjármagn sérstaklega til slíkra verkefna. Lýst er stuðningi við starfsemi Fræðslunets Austur- lands og hvatt til áframhaldandi samstarfs við háskóla í landinu. Sérstaklega er undirstrikað að kostnaður við nám á háskólastigi er á ábyrgð ríkis en ekki sveitarfé- laga þótt um fjamám sé að ræða. Stjómvöld eru minnt á að framhaldsskólar lands- byggðarinnar og nýstofnaðar fræðslumiðstöðvar eru homsteinar menntunar og fræðslu í hveijum landsfjórð- ungi og að afkoma þeirra skiptir sköpum fyrir byggðar- þróun í landinu. Yfirfærsla á málefnum fatlaðra Aðalfundur SSA 1999 felur landshlutanefhd um yfir- færslu á málefhum fatlaðra á Austurlandi að vinna áfram að frekari upplýsingaöflun og undirbúningi að yfirtöku sveitarfélaganna á málaflokknum frá ríkinu. Fyrirkomulag innheimtu eftirlitsgjalda fyrir HAUST Fundurinn samþykkir að innheimtuform eftirlitsgjalda árin 1999 og 2000 verði óbreytt frá þvi sem verið hefur. Fyrir lok ársins 2000 verði tekin afstaða til forms inn- heimtu, en á sama tíma rennur út reynslutími fyrir rekst- ur Heilbrigðiseftirlits Austurlands í formi byggðasam- lags. Mengunarsjóður HAUST Aðalfúndur SSA 1999 samþykkir að vísa bréfi Heil- brigðiseftirlits Austurlands, dags 28. júlí sl., varðandi mengunarbótasjóð til stjómar SSA til ffekari úrlausnar. Gæði heilbrigðisþjónustu á Austurlandi Aðalfúndur SSA 1999 skorar á ráðherra heilbrigðis- mála að efla ráðstafanir til að tryggja meira framboð af læknum og hjúkmnarfræðingum til starfa í dreifbýli og tryggja þannig- að gæði heilbrigðisþjónustu þar verði ekki lakari en á þéttbýlli svæðum landsins, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu. Svofelld greinargerð fylgdi tillögunni: Á síðustu árum hefur viðvarandi skortur á læknum verið til stórvandræða á Austurlandi. Það ástand eykur álag á starfandi lækna og styttir starfstíma þeirra í fjórð- 1 1 1

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.