Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Qupperneq 65
BÆKUR OG RIT
MENNINGARMAL
Úrskurðir og álit
félagsmálaráðu-
neytisins í sveitar-
stjórnarmálum 1999
Félagsmálaráðuneytið hefiir gefið
út „Úrskurði og álit félagsmálaráðu-
neytisins í sveitarstjórnarmálum
1999“. Rit þetta er hið níunda sem
ráðuneytið gefur út á grundvelli
sveitarstjómarlaga og hefur það að
geyma úrskurði og álit félagsmála-
ráðuneytisins í sveitarstjómarmálum
á árinu 1999.
í ritinu em, eins og í fyrri hlið-
stæðum ritum, efnisskrá, sem telur
39 álit og úrskurði eða svör ráðu-
neytisins við fyrirspumum, lagaskrá
þar sem tilgreint er hvaða greinar
sveitarstjómarlaganna einstakir úr-
skurðir eigi við svo og skrá yfír
önnur lög sem vitnað er til.
í formála ritsins segir Sesselja
Ámadóttir, deildarstjóri í ráðuneyt-
inu: „Eftir gildistöku nýrra sveitar-
stjórnarlaga nr. 45/1998 hefur að
nokkru verið náð því markmiði að
fækka kærumálum. Mun minna hef-
ur borist af einföldum málum, en
þau sem berast eru almennt um-
fangsmeiri og flóknari, sérstaklega
þau sem varða starfsmannamál.
Fyrirkomulag útgáfunnar er
óbreytt frá fyrri árum, þ.e. sams
konar uppbygging er á efhisskrá og
lagaskrám. Um er að ræða úrskurði
og álit ráðuneytisins á grundvelli
sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998,
stjómsýslulaga nr. 37/1993, laga um
tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995,
laga um gatnagerðargjöld nr.
51/1974 og laga um gatnagerðar-
gjaldnr. 17/1996.“
Ritið er 112 bls. að stærð. Það
fæst í félagsmálaráðuneytinu og á
skrifstofu sambandsins og kostar
2.000 krónur.
Samstarfshópur um
menningarmál á
landsbyggðinni
Að frumkvæði stjómar sambands-
ins hefúr menntamálaráðherra skip-
að samstarfshóp um menningarmál á
landsbyggðinni. Hópnum er ætlað
það hlutverk að fjalla um eflingu
menningarlífs og á hvem hátt megi
auðvelda og fjölga heimsóknum
listamanna til einstakra byggðarlaga.
1 samstarfshópnum em Karitas H.
Gunnarsdóttir, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, sem er for-
maður, Gísli Sverrir Ámason, forseti
bæjarstjórnar Sveitarfélagsins
Hornafjörður, tilnefndur af stjórn
sambandsins, og dr. Guðrún Helga-
dóttir menningarráðgjafi, sem
Byggðastofhun tilnefndi.
Samstarfshópurinn hefur verið
beðinn að skila álitsgerð fyrir 15.
október nk.
fyrir
heimkeyrsluna og sumarbústaðinn
Sandblástur & Málmhúðun
Arstíg 6 • Akureyri • Sími: 462 2122 • Fax
1 27