Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Side 66
BYGGÐARMERKI
Byggðarmerki
Sveitarfélagsins
Skagaflarðar
Skagafjörður
Á fundi sínum hinn 29. júni sl.
samþykkti sveitarstjóm Sveitarfé-
lagsins Skagaijarðar byggðarmerki
fyrir hið sameinaða sveitarfélag.
Einkaleyfastofan staðfesti það hinn
15. nóvember. Byggðarmerkið er,
eins og segir í samþykkt um það,
„blár skjöldur (Pantone 287) með
hvítum táknum, eða í stað hvíts
„málmur“ silfur. Táknin em lóðrétt
til vinstri, efri hluti sverðs og til
hægri húnn biskupsstafs, bagals.
Þessi tákn tengjast sögu Skagafjarð-
ar, sverðið sem tákn veraldlegs
valds og biskupsstafurinn andlega
valdið. Blár litur er tákn himins og
hafs.“
Merkið hannaði Snorri Sveinn
Friðriksson, listmálari og deildar-
stjóri leikmyndadeildar Sjónvarps-
ins, en hann lést nokkrum dögum
eftir að hann hafði lagt lokahönd á
það. Snorri var einnig höfundur
byggðarmerkis Sauðárkróks, en hið
nýja merki byggir líka að hluta til á
byggðarmerki Skagafjarðarsýslu.
ALLAR GERÐIR ELDVARNATÆKJA - ÞJÓNUSTUM SLÖKKVITÆKI
ÓLAFUR GÍSLASON & CO hf
Eldvarnamiðstöðin
Sundaborg 3 • 104 - Reykjavík
Sími: 568-4800 • netfang: ogeld@islandia.is
DUFT-,
KOLSÝRU- OG
LÉTTVATNSTÆKI
í ÖLLUM STÆRÐUM
BRUNASLÖNGUR
SLÖKKVITÆKI
MARGAR
STÆRÐIR
ELDVARNATEPPI
LENGDIR
15TIL50
MED OG ÁN SKÁPA
MARGAR GERÐIR
OG STÆRÐIR,
STAKIR OG SAMTENGDIR
REYKSKYNJARAR
Byggðarmerki
Sveitarfélagsins
Árborgar
9
Sveitarfélagið
ÁRBORG
Byggðarmerki sveitarfélagsins
Árborgar var afhjúpað við hátíðlega
athöfh á Hótel Selfossi föstudaginn
12. nóvember. Sérstök nefnd valdi
merkið úr 48 tillögum sem bámst í
opinni samkeppni um nýtt byggðar-
merki.
í umsögn nefndarinnar um merk-
ið sem varð fyrir valinu segir:
„Merkið uppfyllir skilyrði reglu-
gerða um byggðarmerki. í merkinu
er unnið með þá hluti sem nafn bæj-
arfélagsins felur í sér, þ.e. ÁR-
BORG, nafn bæjarfélagsins tengist
myndmálinu mjög sterkt þannig að
nafn þess endurspeglast í merkinu
sjálfú. Ölfusá er í aðalhlutverki og í
fjarska sést tákn fyrir byggðina við
hana. Helsti styrkur merkisins er
einfaldleikinn og gott jafnvægi er
milli forma sem em bæði sterk og
ákveðin.
Við fyrstu sýn gæti merkið sýnst
of einfalt en í merkjahönnun er það
talið ótvíræður styrkur. Fólk kemur
til með að muna þetta merki eftir að
það hefur séð það einu sinni. Merk-
ið stendur einstaklega vel í svart/-
hvítri útfærslu og tapar ekki neinu
af einkennum sínum; merkið í blá-
um lit, sem er aðallitur þess, á líka
vel við. Merkið hefur yfír sér nú-
tímalegan og ferskan blæ sem er án
efa gott veganesti fyrir hið nýstofn-
aða sveitarfélag."
Höfúndur merkisins er Finnur Jh.
Malmquist, grafískur hönnuður hjá
auglýsingastofúnni Fíton.
1 28