Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 15
Heilbrigbismál
237
hafa komið síðustu misserin. Lögreglan hefur upp-
lýst viðamikil mál undanfarið og rofið þannig inn-
flutningsleiðir til landsins. Þannig hafa straum-
hvörf orðið hvað þennan þátt í baráttunni við fíkni-
efnasmygl varðar.
Nú er þörf á að hefja sams konar átak gegn
dreifingu og sölu innanlands með ennþá öflugra
forvarnastarfi og markvissara eftirliti. Fíkniefna-
neysla ungs fólks tengist að miklu leyti skemmt-
anamenningu þess, og er því þörf á auknu eftirliti,
meðal annars í forvarnaskyni. Samkvæmt saman-
tekt embættis ríkislögreglustjóra á þriðjungur
líkamsmeiðinga sem tilkynntar eru til lögreglu sér
stað inni á skemmtistöðum eða við þá og meirihluti
þeirra á sér stað frá miðnætti til klukkan sex að
morgni sé horft til landsins alls.3) Aðgerðir lögreglu
og sveitarfélaga eiga m.a. að miðast við að sporna
við ofbeldisverkum og fíkniefnaneyslu í tengslum
við skemmtistaði, en tengsl virðast á milli þessara
þátta, sbr. samantekt embættis ríkislögreglustjóra.
b) Því verði sterklega beint til allra viðkom-
andi aðila að lög um aðgengi barna og
ungmenna að áfengi og tóbaki séu virt og þeim
fylgt fast eftir. Skorað verði á lögregluyfirvöld
og sveitarstjórnir sem veitendur leyfis til
vínveitinga að gera ýtrustu kröfur til handhafa
slíkra leyfa og rekstraraðila vínveitingahúsa um
að lög um aðgengi ungmenna að vínveitinga-
húsum og áfengi séu virt. Lagt er til að Sam-
band íslenskra sveitarfélaga hvetji til viðræðna
við lögreglu um eflingu samstarfs og að sveitar-
félög hafi frumkvæði að því.
Því verði beint mjög ákveðið til sveitarfélaga
að setja sér skýra aðgerðaáætlun um viðbrögð
við brotum á skilmálum vínveitingaleyfa og
kynna þær rækilega. Jafnframt verði efld
fræðsla um lög og reglur sem að þessum málum
lúta.
Því verði sérstaklega beint til þeirra sveitar-
stjórna sem ekki hafa þegar sett sér skýrar
reglur um íhlutun með aðgerðaáætlun um
viðbrögð við brotum í skólum og þeim stofn-
unum sveitarfélagsins, sem börn og unglingar
sækja, að gera það nú þegar og fylgja þeim fast
eftir.
Fylgja þarf fast eftir að landslög og reglur sem
sveitarfélög setja um vínveitingaleyfi séu virt,
hvað varðar aðgengi og vínveitingar til ungmenna
undir áfengiskaupaaldri. Efla þarf fræðslu fyrir
söluaðila tóbaks, leyfishafa vínveitingaleyfa og
rekstraraðila vínveitingastaða ásamt starfsfólki sem
þar starfar, s.s. dyraverði og barþjóna, þannig að
þessir aðilar verði sterklega meðvitaðir um ábyrgð
sína og lagaskyldur.
Nauðsynlegt er að reglur sveitarfélaga fyrir
stofnanir sinar séu skýrar og öllum kunnar, bæði
starfsmönnum og þeim sem húsin nota.
Jafnframt því sem nauðsynlegt er að fylgja fast
eftir lögum um aðgengi ungmenna undir aldri að
vínveitingastöðum og sölu áfengis til þeirra, verður
að gera þeim kleift að skemmta sér á heilbrigðan
hátt í heimabyggð sinni.
7. Ráðgjöf og meðferðarúrræði
Því verði beint til stofnana sveitarfélaga, þ.e.
skóla, félagsþjónustu og æskulýðs- og íþrótta-
• Slitmeiri lok - ISO staölar
■
011 framleiðsla er efnagreind í fullkomnu efnagreiningartæki sem tryagir að efnisgæði
uppfylla kröfur ISO staola. Helstu hlutir eru framleidair með dagsmerlingum og með
því móti mó rekja framleiðsluno til gæðokerfisins.
Flotkarmur/lok MÞJ ■ 120 í malbikaðar götur fyrir 40 tonna ólag
Léttkarmur/lok MÞJ ■ 130 í malbikuð plön fyrir 25 tonna ólag
Graskarmur/lok MÞJ -134 í gróðurreiti fyrir 25 tonna ólag
Hellukarmur/lok MÞJ -136 í hellulagnir fyrir 25 tonna ólag
ðurfallshólkar/ristar, margar gerðir fyrir götur, plön, gróðurreiti o.fl.
MÁLMSTEYPA
Þorgrims Jónssonar ehf.
Hyrjarhöfða 9*112 Reykjavík
Sími 587 2650 • Fax 56/ 4860