Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 36
Félagsmál
• auknar væntingar þjónustuþega vegna nálægðar
við ákvarðanavaldið
• aukinn kostnaður.
Niðurstaða
í nýja frumvarpinu til félagsþjónustulaga er mik-
il áhersla lögð á þjónustu i samræmi við þarfir ein-
staklingsins og nærumhverfi hans, þjónustu við
hæfi hvers og eins óháð því til hvaða þjóðfélags-
hópi viðkomandi einstaklingur heyrir. Talið er að
þessi nálgun sé líklegri til árangurs þegar tekið er
mið af markmiðum laga um að stuðla að velferð á
grundvelli samhjálpar og jöfnum rétti til lífsgæða.
I ljósi þeirrar reynslu sem starfsmenn félagsþjón-
ustu Vestmannaeyjabæjar hafa af reynslusveitarfé-
lagaverkefni síðastliðinna ára er það vissulega orð-
ið mjög tímabært að eyða þeinr mismun í aðgengi
að þjónustuúrræðum sem núgildandi lög staðfesta
milli ólíkra þjóðfélagshópa og því kærkomin breyt-
ing og áskorun sem felst í því að byggja upp þjón-
ustuúrræði grundvallað á mismunandi þörfum en
samt á grundvelli blöndunar og gæða í þjónustu.
(Hindrun= kostnaðarauki fyrir sveitarfélagið). Við
erum t.d. þessa mánuðina að skoða möguleikann á
samræmdri dagþjónustu fyrir börn á grunnskóla-
aldri, þar sem saman fer daggæsla á heilsársgrund-
velli, æskulýðs- og tómstundastarf ásamt sértækri
þjálfun á grundvelli mismunandi þarfa barna á
aldrinum 6-16 ára. Að þessu verkefni koma póli-
tískt kjörnir fulltrúar, félagsþjónustan, skólaþjón-
ustan og íþróttahreyfingin og verður spennandi að
sjá hvort af verður.
I samþættingunni leggjum við áherslu á:
• heildarsýn
• þekkingu og reynslu
• sérhæfingu
• sveigjanleika
• samvinnu
• úrlausnir (úrræði) og síðast en ekki síst
• fjármagn.
Fleiri og fleiri velja ELGO-Múrklœðningu
ELGO-múrkkcðnlng hef ur verið undlr eftirliti RB
síðastliðln 10 ár og hefur hún farið í gegnum
ýmsar prófanlr, svo sem NORDEST NTBuild 66
og staðfcst þaar allar.
ELGO-múrklœðning var tekJn út af Blml Martelnssyni
vorkfrœðingi hjá RB (Rannsóknast.Byggingariðnaðarins) 1
þfón m t v§?D1 >/tf)
rltn rT^ntÐ? •» mm teijymfi? hysjsjtrejD
tttin h^rYtíT? ð rV/ri «SJ ntOFD
rttin s? mi teD?Í17, vn? ÖD n1nonD?n?
Byfll p@r ILMHM
ELGO-múrklœdning var valin á:
Heiðarskóla Reykjanesbœ
Stjórnsýsluhúsið Þorlákshöfn
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Grindavíkurskóla Grindavfk
Viðbygging Njarðvíkurskóla
steinprvói
hnutarU«A$karmjrvk»|
Stongnrhyl 7 - 567-2777 - www.elgo.is - snlau clgo.is