Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 92
Umhverfismál
Stefán Gíslason, verkefnisstjórí Staóardagskrár 21 á íslandi:
Staðardagskrá 21
á Norðurheimskautssvæðinu
Staldrað við í Sisimiut
Haustið 2000 var hleypt af stokkunum tveggja
ára norrænu verkefni um Staðardagskrá 21 á Norð-
urheimskautssvæðinu, en til þess svæðis teljast í
þessu samhengi ísland, Grænland og Svalbarði.
Verkefnið er tjármagnað af norrænu ráðherra-
nefndinni í gegnum vinnuhópinn um náttúru og
útivist (Natur- og friluftslivgruppen) og á rætur í
norrænu framkvæmdaáætluninni um verndun nátt-
úru og menningar á Norðurheimskautssvæðinu.'* 1
Tilgangur verkefnisins er m.a. að greina sameigin-
leg vandamál við gerð Staðardagskrár 21 á þessum
svæðum og að leita leiða til að leysa þessi vanda-
mál.
Til að nýta þá reynslu sem fengist hefur í Staðar-
dagskrárstarfinu hérlendis var ákveðið að verk-
efnisstjóri Sd21 á íslandi yrði jafnframt formaður
stýrihóps Norðurheimskautsverkefnisins. Ritari
hópsins er einnig staðsettur á íslandi, en auk þeirra
sitja í hópnum tveir fulltrúar frá Grænlandi og tveir
frá Svalbarða.
Stefán Gíslason er
fœddur 1957. Hann lauk
BS-prófi i líffrœði frá HÍ
1980, prófi í uppeldis- og
kennslufrœði frá saina
skóla 1982 og MSc-prófi
í umhverfisstjórnun frá
Háskólanum i Lundi
i Svíþjóð 1998. Hann
starfaði sem skólastjóri
grunnskólans á Broddanesi 1982-1985, var
sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps 1985-1997 og
jafnframt framkvœmdastjóri héraðsnefndar
Strandasýslu 1988-1997. Frá árinu 1998 hefur
hann starfað sem verkefnisstjóri Staðardagskrár
21 á Islandi, aukþess að reka eigið ráðgjafar-
fyrirtæki, UMÍSehf, ENVIRONICE.
Þátttakendur
Eitt sveitarfélag eða samfélag frá hverju hinna
þriggja svæða tekur þátt í verkefninu. ísafjarðar-
bær er fúlltrúi Islands en aðrir þátttakendur eru
Longyearbyen á Svalbarða og Sisimiut á Græn-
landi.
Longyearbyen er ekki sveitarfélag í venjulegum
skilningi heldur er samfélaginu stjórnað frá
skrifstofú Sýslumannsins á Svalbarða fyrir hönd
norska ríkisins. Vissir þættir i rekstri samfélagsins
hafa fram að þessu verið í höndum hlutafélags
í ríkiseigu, Svalbard Samfunnsdrift A/S, en um
næstu áramót (2001/2002) tekur lýðræðislega
kjörið ráð, Svalbarðaráðið, við þessum verkefnum.
Líta má á Svalbarðaráðið sem vísi að sveitarstjórn
Longyearbyen. í bænum búa nú um 1.400 manns,
nær eingöngu Norðmenn. Auk kolavinnslu starfa
íbúarnir við rannsóknir, ferðaþjónustu o.fl. Ibúa-
skipti eru tíð og að meðaltali varir búseta aðeins
í um ijögur ár.
Starf verkefnisstjórnar
Stjórn verkefnisins hefúr haldið þrjá fúndi það
sem af er. Fyrsti fundurinn var haldinn í Osló á
síðasta hausti, annar fundurinn á Isafirði í apríl
2001 og sá þriðji í Sisimiut 19.-20. júlí sl. Meðal
smærri verkefna sem verkefnisstjórnin vinnur að
um þessar mundir má nefna bækling með ábend-
ingum um umhverfismál fyrir íbúa þátttökusam-
félaganna og samkeppni um góðar hugmyndir eða
verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun. Sumarið
2002 er síðan ætlunin að gefa út lokaskýrslu verk-
efnisins og er henni einnig ætlað að nýtast í Staðar-
dagskrárstarfi annarra sveitarfélaga á heimskauts-
svæðinu.
Staldrað við í Sisimiut
Eins og fyrr segir var þriðji fundur verkefnis-
stjórnarinnar haldinn i Sisimiut í júlí. Sisimiut er